Líf í afneitun er eins og að klippa af sér vængina

Sama dag og kvik­myndin Arctic var frum­sýnd, þar sem María Thelma Smára­dóttir fer með aðal­hlut­verk á móti danska stór­leik­ar­anum Mads Mikk­el­sen, var ein­leik­ur­inn Velkomin heim, sem segir sögu for­mæðra hennar, frum­sýndur í Kassanum í Þjóð­leik­hús­inu.

Líf í afneitun er eins og að klippa af sér vængina

Mannleg sam­skipti og hug­myndin um að í grunn­inn séum við mann­eskj­urnar allar eins eru rauði þráð­ur­inn í gegnum þau tvö stóru en ólíku verk sem María Thelma Smára­dóttir fer með aðal­hlut­verk í og voru frum­sýnd í byrjun mán­að­ar­ins. Í kvik­mynd­inni Arctic leikur María Thelma á móti danska stór­leik­ar­anum Mads Mikk­el­sen en leik­stjóri mynd­ar­innar er Joe Penna. Saman bera þau María Thelma og Mads mynd­ina uppi og hafa bæði hlotið lof fyrir. Þau eru einu leik­arar mynd­ar­innar og annað þeirra eða bæði eru á skjánum í gegnum hana alla. Í Kassanum stendur María Thelma svo ein og ber uppi ein­leik­inn Velkomin heim, sem byggir á sögu for­mæðra hennar.

Það mætti ímynda sér að bæði þessi verk hafi sett mikla pressu á unga leikkonu en María Thelma útskrif­að­ist af leik­ara­deild LHÍ árið 2016. „Þessi tvö verk­efni voru bæði mjög brött og allt öðru­vísi en það sem ég bjóst við að tæki …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár