Geðhjálp leiðréttir villandi málflutning Jóns Baldvins um geðhvarfasýki

„Er því alfarið vísað á bug að eitt af meg­in­ein­kennum geð­hæða felist í auknum áhuga á kyn­lífi þótt dæmi séu um slíkt á meðan á geð­hæð stendur,“ segir í til­kynn­ingu frá sam­tök­unum.

Geðhjálp leiðréttir villandi málflutning Jóns Baldvins um geðhvarfasýki

Stjórn Geð­hjálpar hefur sent út til­kynn­ingu vegna ummæla Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar, fyrr­ver­andi ráð­herra og for­ystu­manns jafn­að­ar­manna á Íslandi, um geð­hvarfa­sýki en Jón hefur haldið því fram að þrá­hyggja gagn­vart kyn­lífi sé eitt helsta ein­kenni sjúk­dóms­ins. 

„Í kjöl­far fjölda erinda til Lands­sam­tak­anna Geð­hjálpar vill stjórn sam­tak­anna vekja athygli á þeirri stað­reynd að meg­in­ein­kenni geð­hvarfa fel­ast í tíma­bundnum geð­hæðum og -lægðum og því að ein­kenni geð­hæða hverfa um leið og jafn­vægi er náð á ný. Brýnt er að almenn­ingur sé með­vit­aður um að þegar ein­stak­lingur með geð­hvörf er ekki í geð­hæð sé hann jafn veru­leika­tengdur og trú­verð­ugur og allur almenn­ingur. Síðast en ekki síst er því alfarið vísað á bug að eitt af meg­in­ein­kennum geð­hæða felist í auknum áhuga á kyn­lífi þótt dæmi séu um slíkt á meðan á geð­hæð stendur,“ segir í til­kynn­ingu þeirra.

„Geðhjálp minnir á að fólk með geð­rask­anir verði fyrir hvað mestum for­dómum af öllum jað­ar­settum hópum í sam­fé­lag­inu. Fjöl­miðla­fólk, aðrir áhrifa­valdar og almenn­ingur þurfi að vera vak­andi fyrir því að ala ekki á for­dómum gagn­vart þessum hópi með því að birta for­dóma­full ummæli á opin­berum vett­vangi. Þegar ekki tak­ist að véfengja for­dóma­full ummæli við­mæl­enda á meðan á umfjöllun standi, sé eðli­legt að bregð­ast við rang­færslum með því að birta réttar upp­lýs­ingar eftir fag­fólk og not­endum í kjöl­farið.“

Stjórn Geð­hjálpar hvetur fjöl­miðla til að ljá fólki með sögu um geð­rænan vanda rödd, draga ekki í efa trú­verð­ug­leika þess, forð­ast eftir fremsta megni birt­ingu for­dóma­fullra ummæla gagn­vart fólki með geð­rænan vanda og stuðla að því að fræða almenn­ing um eðli geð­rask­ana og rétt­indi fólks með geð­rask­anir með fag­legum og upp­byggi­legum hætti. Þá benda sam­tökin benda á vef­inn www.rettindagatt.is í tengslum við umfjöllun um laga­leg rétt­indi fólks með geð­rask­anir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár