Konur upplifa að læknar hlusti ekki á þær

Heilsufars­áhyggjur kvenna eru stundum afskrifaðar sem móðursýki. Rann­sóknir erlendis sýna að konur upplifa mismunun á við karla í heilbrigðis­kerfinu. Mikilvægt að hlusta á lýsingar þeirra.

Getur skapað hættu
Getur skapað hættu Upplifi konur að ekki sé hlustað á þær í lækn­is­heim­sóknum getur það valdið því að þær fari að efast um veik­indi sín og skirrist við að leita sér frek­ari lækn­inga, segir Guðrún Stein­þórs­dóttir. Mynd: Heiða Helgadóttir

Konur upplifa oft og iðulega að ekki sé hlustað á þær þegar þær hitta lækna. Áhyggjur þeirra af eigin heilsu og lýsingar á verkjum eru jafnvel afskrifaðar sem móðursýki og kerlinga­bækur. Konur lýsa því að læknar hlusti ekki á þær, að þeir sjúkdóms­greini þær ekki, neiti að senda þær í frekari rann­sóknir en sendi þær heim með skilaboð um að ekkert sé að þeim, utan að þær séu stressaðar og mættu mögulega við því að missa nokkur kíló.  

Getur haft alvarlegar afleiðingar

Þetta eru upplifanir og lýsingar íslenskra kvenna en ekki hefur verið gerð nákvæm rannsókn á upplifun kvenna hér á landi af samskiptum við lækna. Erlendis fer hins vegar fram mikil umræða þessi misserin um misræmi í upplifun kvenna og karla af heilbrigðis­kerfinu. Þannig sýna rann­sóknir að konur fá ávísað minni verkja­lyfjum eftir aðgerðir heldur en karlar fá, jafnvel þótt konur lýsi meiri kvölum. Rannsókn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár