Býðst til að senda Reykjavíkurborg tvö pálmatré að gjöf frá Filipseyjum

Bæring Ólafsson, sem um tíma hugð­ist bjóða sig fram sem til emb­ættis for­seta Íslands, býður borg­inni tvö tré úr garð­inum sínum. Flutn­ing­ur­inn kostar 200 þús­und krónur og tekur níu vikur.

Býðst til að senda Reykjavíkurborg tvö pálmatré að gjöf frá Filipseyjum
Bæring gjaf­mildi Býðst til að gefa borg­inni pálma­tré og spara henni þar með pen­inga.

Bæring Ólafsson, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri og um skamma hríð for­seta­fram­bjóð­andi, hefur boð­ist til að gefa Reykja­vík­ur­borg tvö pálma­tré og spara þannig borg­inni „tugi millj­óna“ eins og hann orðar það. Þetta gerir Bæring í færslu á Facebook síðu sinni.

Bæring sem er búsettur á Manila á Fil­ips­eyjum birtir mynd af tveimur pálmatrjám í garð­inum sínum og segir að þau megi borgin eiga. Hann geti sent þau til Íslands í 20 feta gámi fyrir 200 þús­und krónur. „Var að tjékka á flutn­ings­kostn­aðnum rétt áðan..... get sparað Reykja­vík­ur­borg tugi millj­óna með þessu. Bara láta mig vita, tekur 9 vikur í flutn­ingum, verður komið í fyrstu vik­unni í maí.“

Bæring er með þessu að tala, lík­lega í léttum dúr, inn í umræðu um úti­lista­verkið Pálma sem setja á upp í nýrri Voga­byggð ef allt gengur eftir. Það er hins vegar ofsögum sagt hjá Bæring að hann myndi með þessu spara borg­inni tugi millj­óna. Samkvæmt kostn­að­ar­á­ætl­una kosta pálma­trén tvö sem stefnt er að því að setja upp um 1,5 millj­ónir króna svo sparn­aður borg­ar­innar, ef rausn­ar­legu boði Bærings yrði tekið, væri um 1,3 millj­ónir króna. Mestur kostn­aður við upp­setn­ingu verks­ins er hins vegar fólgin í gróð­ur­hús­unum eða stokk­unum utan um þau, en hvor þeirra kostar um 43 millj­ónir króna.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár