Tíu mest lesnu fréttir Stundarinnar árið 2018

Klaust­ur­málið var ansi fyr­ir­ferð­ar­mikið í fréttum árið 2018, en hér eru mest lesnu fréttir Stund­ar­innar á árinu sem var að líða.

Tíu mest lesnu fréttir Stundarinnar árið 2018

1

Þingmenn úthúðuðu stjórnmálakonum: „Hún er miklu minna hot í ár“

Mest lesna frétt árs­ins 2018 á Stund­inni vakti tölu­verða athygli en þar er greint frá niðr­andi orðum sem þing­menn Mið­flokks­ins létu falla um konur á Klaustur Bar. Sögðu þeir meðal ann­ars eðli­legt að kona yrði látin gjalda fyrir það í próf­kjörum að vera ekki jafn „hot“ og áður. „Það fellur hratt á hana,“ sagði Bergþór Ólason. Sig­mundur Davíð tók undir og hló að orðum Bergþórs um að Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, væri „húrr­andi klikkuð kunta“.

2

Vildu hefna sín á Lilju Alfreðsdóttur: „Hjólum í helvítis tíkina!“

Þingmenn Mið­flokks­ins gerðu lítið úr Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra á Klaustri Bar. „Henni er bara fokk­ing sama um hvað við erum að gera. Hjólum í hel­vítis tík­ina! Það er bara málið. Af hverju erum við að hlífa henni? Ég er að verða brjál­aður,“ sagði Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra. „Henni er ekki treystandi og hún spilar á karl­menn eins og kven­fólk kann,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son.

3 „Þarna kom loksins skrokkur sem typpið á mér dugði í“

Ummælin átti Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins á Klaustri. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagð­ist ánægður með sam­eig­in­lega nið­ur­stöðu Bergþórs Ólasonar og Gunnars Braga Sveins­sonar um að þeir vildu „ríða“ ráð­herra. Sig­mundur Davíð til­kynnti að Bergþór og Gunnar Bragi væru komnir í leyfi út af Klaust­urs­upp­tök­unum en sat sjálfur áfram á þingi þrátt fyrir virka þátt­töku í klám- og karl­rembutali.

4 Hæddust að #MeToo sögum og sögðu Albertínu hafa reynt að nauðga sér

Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, sagð­ist vera kjaft­stopp yfir orðum Gunnars Braga Sveins­sonar og Bergþórs Ólasonar um meintar #MeToo sögur þeirra af henni. Hún greindi frá því að Gunnar Bragi hefði hringt í sig, beðist afsök­unar og sagt að atburð­irnir hefðu ekki verið með þeim hætti sem þeir lýstu.

Fjórar mest lesnu fréttir árs­ins á Stund­inni.is skrif­uðu Steindór Grétar Jónsson og Jóhann Páll Jóhanns­son upp úr upp­tökum sem komið var til Stund­ar­innar eftir fund þing­manna á Klaustri þann 20. nóv­em­ber. Bára Hall­dórs­dóttir, hinsegin öryrki sem sat skammt frá þing­mönn­unum, hljóð­rit­aði sam­skiptin.

Sex þing­menn voru við­staddir: Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árna­dóttir sem öll eru þing­menn Mið­flokks­ins og Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son úr Flokki fólks­ins. Samtal þing­mann­anna vakti athygli fyrir margar sakir, meðal ann­ars vegna þess að þar lýsti Gunnar Bragi Sveins­son því yfir að hann ætti inni per­sónu­legan greiða hjá Sjálf­stæð­is­flokknum fyrir skipan í sendi­herra­stöðu og eins fyrir það hvernig þing­menn­irnir töl­uðu um konur, fatl­aða og sam­kyn­hneigða.

Fund­ur­inn hafði tölu­verðar afleið­ingar, fréttir af sam­tali þeirra voru sagðar í öllum miðlum hér á landi auk þess sem þær röt­uðu í erlenda miðla og á fjalir Borg­ar­leik­húss­ins. Boðað var til mót­mæla á Aust­ur­velli, þeir Ólafur og Karl Gauti voru reknir úr Flokki fólks­ins og Gunnar Bragi og Bergþór sendir í launa­laust leyfi. Lilja Alfreðs­dóttir steig síðan fram í Kast­ljósi og lýsti þeim sem tóku þátt í þessu sam­tali sem ofbeld­is­mönnum sem ættu ekki að fara með dag­skrár­vald í íslensku sam­fé­lagi. Þjóðin virt­ist sam­mála Lilju en sam­kvæmt könnun Maskínu vildu á milli 74 og 91 pró­sent Íslend­inga að þing­menn­irnir vikju af Alþingi og það vildi einnig meiri­hluti þing­manna sam­kvæmt könnun Frétta­blaðs­ins.

5 Dreifa mynd af borgarstarfsmanni, kalla hana ógeð og „brundfés“ og vilja „fiðra þessa glyðru“

Jón Steinar Gunn­laugs­son birti grein í Morg­un­blað­inu þar sem hann nafn­greindi fólk sem hafði farið ljótum orðum um hann á lok­uðu Facebook-svæði femínista, eftir að hann hafði kallað eftir því að þolendur barn­a­níð­ings­ins Roberts Downey fyr­ir­gæfu honum. Jóhannn Páll Jóhanns­son skrif­aði frétt um við­brögðin sem létu ekki á sér standa. Fjöldi fólks dreifði mynd af starfs­manni Reykja­vík­ur­borgar á Facebook, kall­aði eftir því að hún yrði flæmd úr ráð­hús­inu og fiðruð, enda væri húnn ógeð og brund­fés og skálað yrði í kampa­vín þegar hún myndi deyja. Ástæðan fyrir heift­inni í garð þess­arar konu var að hún hafði sagt að Jón Steinar væri „krípí“.

6 Konan í myndbandinu stígur fram: „Ég er þessi kona“

Herferð UN Women vakti athygli en áhersla var lögð á mik­il­vægi þess að karlar for­dæmi ofbeldi gegn konum og beiti sér gegn því. Tólf karl­menn lásu upp frá­sagnir kvenna víðs vegar um heim­inn af ofbeldi, en það var ekki fyrr en þeir voru að ljúka við lest­ur­inn sem þeir átt­uðu sig á því að ein sagan var saga kon­unnar sem sat á móti þeim. Engum duld­ist hversu brugðið þeim var en á meðan suma setti hljóðan runnu tár hjá öðrum. Konan var óþekkj­an­leg í her­ferð­inni en Sigrún Sif Jóels­dóttir steig fram í við­tali við Ingi­björgu Dögg Kjart­ans­dóttur. Með því vildi hún und­ir­strika þau skila­boð að ofbeldi er nær en þú heldur.

7 Frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins vill ekki að „duglega fólkið“ haldi uppi sjúklingum sem keppast við að vera veikir

Viðar Guðjohn­sen, sem bauð sig fram í odd­vita­sæti Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar, vakti athygli fyrir öfga­hægrisinnuð sjón­ar­mið. Hann sagð­ist ekki vilja borga fyrir „klessufeitt fólk“ eða „ann­arra manna börn“ og taldi að veikir fíkni­efna­neyt­endur ættu að mæta örlögum sínum óstuddir. Vildi hann að hætt yrði að styðja sjúka fíkni­efna­not­endur, sér­stak­lega þá sem eru af erlendum upp­runa. Eins vildi hann skera niður í félags­þjón­ustu Reykja­vík­ur­borgar með því að hætta þjón­ustu við þá sem verst eru haldnir. 

8 Snappari sendi frá sér yfirlýsingu um sögusagnir af meintu sjálfsvígi manns

„Ég tel það ekki vera mér að kenna ef hann hefur fyr­ir­farið sér,“ sagði Jóhannes Gísli Egg­erts­son snapp­ari, í yfir­lýs­ingu um sögu­sagnir þess efnis að maður hefði svipt sig lífi í kjöl­far tál­beitu­að­gerðar hans. Áður hafði hann birt mynd­band af manni sem hafði mælt sér mót við 14 ára stúlku.

9 „Það hefur engin gugga teymt mig meira á asnaeyrunum en hún sem ég hef ekki fengið að ríða“

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, tal­aði um konu sem „guggu“ sem hann hefði „ekki fengið að ríða“ og Gunnar Bragi Sveins­son kall­aði stjórn­mála­konu „hel­vítis tík“. Jóhann Páll Jóhanns­son vann frétt­ina upp úr upp­tökum af fundi þing­manna á Klaustri bar þann 20. nóv­em­ber.

10 Sigmundur Davíð þiggur húsnæðisgreiðslur þrátt fyrir tilvitnuð orð hans um annað

Steindór Grétar Jónsson greindi frá því hvernig svör Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, stöng­uð­ust á við upp­lýs­ingar um greiðslur til þing­manna sem gerðar voru opin­berar. Áður hafði Sig­mundur Davíð sagt í við­tali við DV að hann hefði aldrei þegið hús­næðis- og dval­ar­greiðslur en annað kom í ljós þegar Alþingi birti á vef sínum upp­lýs­ingar um fastan kostnað þing­manna auk þing­far­ar­kaups.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár