Fögnuður ljóssins, jóladansleikur, og umskiptingar á Suðurskautslandinu

Tónleikar, viðburðir og sýningar 21. desember - 10. janúar

Þetta og svo margt fleira er að gerast næstu þrjár vikurnar

Andkristnihátíðin

Hvar? Gaukurinn
Hvenær? 21. desember kl. 18.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Á myrkasta degi ársins sameinast átta hljóm­sveitir úr svart­metal­senunni til að fagna komandi ljósi. Þessi hátíð heiðingjanna hefur legið í dvala síðastliðin tvö ár en snýr aftur með látum og heilli fylkingu af hljómsveitum sem eru leiðandi í senunni. Fram koma Carpe Noctem, Sinmara, Nvll, Almyrkvi, Örmagna, Mannveira, Bömmer og World Narcosis.

Jóladansleikur Bjartra sveiflna

Hvar? Húrra
Hvenær? 21. desember kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Ábreiðu­sveitin Bjartar sveiflur hefur komið víða við síðasta árið og efna til jóla­dansleiks þar sem gestir geta boðið vinum og vanda­mönnum dans. Vinsæl jólalög verða spiluð, margir gesta­söngvarar stíga á sviðið og Saga Sig og Erna Bergmann munu krýna drottningu og konung dans­leiksins út frá klæða­burði.

Une Misère & Celestine

Hvar? Húrra
Hvenær? 22. desember kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Orku­boltar landsins geta fagnað því að stærstu harðkjarna­sveitir landsins ætla að kveðja árið með dúndrandi tónleikum. Celestine var stofnuð 2006 og er ein af forsprökkum harðkjarna­tónlistar Íslands á meðan að Une Misère steig á sviðið tíu árum síðar og hefur verið leiðandi afl í senunni.

Uppistand um hátíðirnar

Hvar? Gaukurinn
Hvenær? 23. desember kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Grín­istarnir í Goldengang-hópnum halda saman uppistand á Þorláks­messu. Hópurinn hefur haldið vikulega viðburði á mánudögum á Gauknum allt árið, en sökum jóla færist kvöld þeirra yfir á sunnu­daginn. Búast má við alls konar bröndurum og sýningum frá 8–10 mismun­andi grínistum.

Jon Hopkins & Kiasmos 

Hvar? Húrra 
Hvenær? 31. desember kl. 00.30
Aðgangs­eyrir: 3.500 kr.

Hálftíma eftir að nýja árið hefst opnar Húrra hurðir sínar og hleypa að Jon Hopkins og Kiasmos. Jon Hopkins hefur skrifað tilfinninga­þrungna raftónlist í nærri tvo áratugi og flutt hana úti um allan heim, en hann tók meðal annars upp smáskífu sína, Asleep Versions, á Íslandi. Með honum spilar rafdúettinn Kiasmos sem samanstendur af Ólafi Arnalds og Janusi Rasmussen.

The Thing 

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 6. janúar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Stór­myndin The Thing er nýárs­sýning Svartra sunnudaga. Þessi John Carpenter-költmynd gerist á Suðurskauts­landinu 1982 þar sem umskiptinga­geimvera sem var föst í frostjörð þiðnar og reynir að komast til byggða. Áfengis­sjúkur þyrlu­flugmaður, leikinn af Kurt Russel, reynir að hindra för þessarar hættulegu geimveru vopnaður eldvörpu og dínamíti.

Ásmundur Sveinsson: List fyrir fólkið

Hvar? Ásmundar­safn
Hvenær? Lokar 6. janúar
Aðgangs­eyrir: 1.650 kr.

Á sýningunni er sjónum beint að öllum ferli Ásmundar Sveins­sonar, allt frá tréskurðar­námi hjá Ríkarði Jónssyni og til síðustu ára lista­mannsins. Sýnd eru verk unnin í ýmis efni, þar á meðal verk höggvin úr tré, stein­steypu og brons. Á sýningunni eru jafnframt frum­myndir þekktra verka sem stækkuð hafa verið og sett upp víða um land.

Ég dey

Hvar? Borgar­leikhúsið
Hvenær? Frumsýnt 10. janúar
Aðgangs­eyrir: frá 6.550 kr.

Ég dey er einleikur eftir Charlotte Bøving sem hún skrifar og flytur þar sem hún skoðar lífið frá sjónar­hóli dauðans og dauðann frá sjónar­hóli lífsins. Hún var orðin 50 ára þegar hún gerði sér almennilega grein fyrir því að hún myndi deyja, en sýningin er unnin út frá þessari uppgötvun. Þetta er þriðja einka­sýning Charlotte.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár