Sjómannafélagið greiddi Halli 1,2 milljónir króna fyrir bækling

Hallur Hallsson fékk 1,2 millj­ónir króna frá Sjó­manna­fé­lagi Íslands fyrir ritun upp­lýs­inga­bæk­lings. Þetta bæt­ist við þær þrettán millj­ónir króna sem hann fékk fyrir að rita sögu félags­ins. Hvorki hann né for­maður félags­ins svara því hvort hann hafi fengið greitt fyrir fleiri verk­efni.

Sjómannafélagið greiddi Halli 1,2 milljónir króna fyrir bækling
Bók og bæk­lingar Hallur skrif­aði bók um sögu Sjó­manna­fé­lags Íslands sem fæst gef­ins á skrif­stofu Sjó­manna­fé­lags Íslands. Þá skrif­aði hann einnig bæk­linga félags­ins.

Sjómanna­fé­lag Íslands fékk Hall Hallsson, rit­höf­und og fyrr­ver­andi fjöl­miðla­mann, til þess að sjá um árlegan upp­lýs­inga­bæk­ling félags­ins. Hann sá alfarið um verk­efnið þar til fyrir tveimur árum þegar útgáfa bæk­lings­ins var stöðvuð vegna ann­ars kostn­aðar félags­ins í tengslum við verk­föll sjó­manna. Þetta kemur fram í svörum Halls við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Hallur seg­ist hafa fengið 1,2 millj­ónir króna fyrir skrif bæk­lings­ins. Hann svarar því hins vegar ekki hvort hann hafi fengið þessa upp­hæð greidda fyrir skrif hvers bæk­lings fyrir sig eða skrif þeirra allra. Stundin greindi frá því á dög­unum að Hallur hefði fengið alls þrettán millj­ónir króna á árunum 2013–2015 fyrir að skrifa sögu Sjó­manna­fé­lags Íslands. Í árs­reikn­ingi Sjó­manna­fé­lags Íslands fyrir árið 2015 kemur fram að félagið hafi greitt rúm­lega 22 millj­ónir króna fyrir „rit­störf“ á árunum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár