Óánægja með flutning Hins hússins

Flytja á Hitt húsið úr miðbænum og upp í Elliða­árdal. Starfs­fólk og notendur óánægð með samráðs­leysi. Stað­setningin sögð úr alfara­leið og engar almennings­samgöngur á svæðið.

Óánægja með flutning
Óánægja með flutn­ing Starfs­fólk og not­endur þjón­ustu Hins húss­ins eru óánægð með að flytja skuli starf­semi þess úr mið­bænum og upp í Elliða­ár­dal. Mynd: ja.is

Til stendur að flytja starfsemi Hins hússins, sem verið hefur um árabil í húsnæði í Pósthús­stræti, upp í Elliða­árdal. Starfs­fólk Hins hússins mun vera óánægt með að ekki skuli hafa verið haft samráð við það við val á húsnæði og telja stað­setninguna ekki heilla­vænlega fyrir notendur þjónustunnar þar eð hún sé úr alfara­leið. Þannig séu til að mynda ekki strætó­samgöngur að húsnæðinu.

Leigu­samningur vegna húsnæðis undir Hitt húsið að Rafstöðvar­vegi var samþykktur í borgar­ráði í síðastliðinn fimmtudag. Markús H. Guðmundsson, forstöðu­maður Hins hússins, segir að leitað hafi verið að hentugu húsnæði í miðborginni í eitt og hálft ár en ekkert hafi fundist sem henti starfseminni. Hluti starfsemi Hins hússins sé þegar í húsnæðinu í Elliða­árdal, sem áður hýsti minjasafn Orku­veitunnar og nú flytjist hinn hlutinn í sambyggt pláss sem áður hýsti Fornbíla­klúbb Íslands. Húsnæðið bjóði upp á mikla möguleika, næg bílastæði séu í kring og unnið sé að því með Strætó að útfæra akstur nær svæðinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár