Trump stakk upp á vegg þvert yfir Sahara eyðimörkina

Mat Banda­ríkja­for­seta var að um svip­aðan múr yrði að ræða og hann vill byggja á landa­mærum Banda­ríkj­anna og Mexíkó.

Trump stakk upp á vegg þvert yfir Sahara eyðimörkina
Donald Trump Stakk upp á lausn við flótta­manna­vanda Spánar við utan­rík­is­ráð­herr­ann.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti lagði til að Spán­verjar myndu byggja vegg þvert yfir Sahara eyði­mörk­ina til að stemma stigu við flótta­manna­vanda yfir Mið­jarð­ar­hafið. Þetta hefur The Guardian og fleiri erlendir fjöl­miðlar eftir Josep Borrell, utan­rík­is­ráð­herra Spánar.

 

Rök­semda­færsla Trump byggir á því að hans eigin fyr­ir­hug­aði veggur á landa­mærum Banda­ríkj­anna og Mexíkó mun verða í kringum 3.200 kíló­metrar á lengd. Lengd Sahara eyði­merk­ur­innar frá austri til vest­urs mælist í kringum 4.800 kíló­metrar.

„Sahara landa­mærin geta ekki verið mikið lengri en okkar landa­mæri við Mexíkó,“ sagði Trump við Borrell.

Fram­kvæmdin er þó nokkrum vand­kvæðum  háð, þar sem Spánn á aðeins til­kall til tveggja sjálf­stæðra borg­ríkja á landa­mærum Marokkó við Mið­jarð­ar­hafið. Vegg­ur­inn yrði því alfarið byggður á erlendri grundu.

Spánn hefur tekið við yfir 22.000 flótta­mönnum það sem af er árs sam­kvæmt Flóta­manna­skrif­stofu Sam­ein­uðu Þjóðanna. Er það mesta mót­taka flótta­manna af Evr­ópu­þjóð­unum. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár