Nektin er jafnt andleg sem líkamleg

Tómas Lemarquis leikur eitt aðal­hlut­verkið í Snertu mig ekki, Touch Me Not, rúm­ensku mynd­inni sem vann Gull­björn­inn á Berlín í ár.

Nektin er jafnt andleg sem líkamleg

Miðaldra kona sem á erfitt með nánd, trans­kona með áhuga á klass­ískri tón­list, karl­hóra, kyn­lífs­fræð­ingur, fjöl­fatl­aður maður og sköll­óttur maður frá Íslandi. Þetta fólk á það helst sam­eig­in­legt að við fáum að sjá það í allri sinni nekt í rúm­ensku mynd­inni Touch Me Not, sem vann Gull­björn­inn í Berlín í febr­úar.

Þessi nekt er jafnt and­leg sem og lík­am­leg – hér er lík­am­inn og allt sem honum til­heyrir umræðu­efnið. Það væri til lít­ils að þylja upp sögu­þráð­inn, enda er hann hálf­gert auka­at­riði í þess­ari til­rauna­kenndu mynd sem dansar ein­hvers staðar á mörkum heim­ilda­myndar og leik­innar. Hún er miklu frekar um sam­band okkar við eigin lík­ama og þrár honum tengdar – sem maður áttar sig betur á því við áhorfið að er mögu­lega eitt helsta tabú okkar tíma, en kannski ekki endi­lega á þann hátt sem við höldum. Nektin er sjaldn­ast klám­fengin, jafn­vel þótt við heim­sækjum BDSM-klúbb í miðri mynd og kyn­líf sé sann­ar­lega rætt og sýnt – og það er líka eitt­hvað nán­ast bernskt sak­leysi í mynd­inni í hversu opin­skátt per­sónur ræða eigin lík­ama.

Umdeild myndRúmenska kvik­myndin Touch Me Not vann Gullpálmann í Berlín í febr­úar. Myndin er væg­ast sagt umdeild og voru við­brögð margra undrun og reiði.

Það er líka óhætt að full­yrða að þetta er umdeild sig­ur­mynd. Ófáir gengu út af blaða­manna­sýn­ing­unni og við­brögð margra gagn­rýnenda voru undrun og reiði á meðan aðrir gagn­rýnendur fögn­uðu hug­rekki dóm­nefndar. Þegar ég hitti Tómas Lemarquis, einn aðal­leik­ara mynd­ar­innar, dag­inn eftir frum­sýn­ingu var hún ekki enn búin að vinna Gull­björn­inn en var strax orðin veru­lega umdeild.

„Myndin fær fólk til að íhuga eigin nánd og hvaða mörk þau þola“

„Það er bara jákvætt, ég lít alls ekki á það sem eitt­hvað nei­kvætt,“ segir Tómas um við­brögðin. „Svona mynd getur ekki höfðað til allra, sumir munu skilja hana og hún mun sjokkera aðra. En það er líka það sem við viljum, að fólk bregð­ist við. Myndin fær fólk til að íhuga eigin nánd og hvaða mörk þau þola.“

Hann bjó lengi í Berlín en er núna fluttur heim – en gleðst yfir því að myndin hafi kom­ist inn á jafn stóra hátíð. „Það er stór­kost­legt af því þetta er svo erfið mynd, sjóð­andi pönnu­kaka sem ekk­ert margir þorðu að snerta til að byrja með.“

Hugrekki að stökkva í hyldýpið

Þegar ég horfði á mynd­ina hugs­aði ég fyrst að þetta væri mynd um lík­ama – og svo að þetta væri mynd um orð. En lík­amar okkar eru einmitt eitt­hvað sem við eigum stundum erfitt að koma orðum að, og því er dálítið eins og mynda­vélin sé tækið sem notað er til að ná sáttum á milli lík­ama og hugar. Þetta er að vissu leyti und­ir­strikað með því hvernig leik­stýran Adina Pintilie birt­ist á mónitor í miðri mynd, lík­ams­laus, og spyr okkur: „Af hverju hef­urðu aldrei spurt mig hvað þessi mynd sé um? Og af hverju hef ég aldrei sagt þér það?“ En hvernig mynd er þetta?

„Það þurfti rosa­legt hug­rekki, hjá okkur öllum, að þora að stökkva í þetta hyl­dýpi og þora að sýna þessa við­kvæmni“

„Það var eng­inn texti skrif­aður, þetta var allt impró­víserað. Við tókum allar senur upp nokkrum sinnum,“ segir Tómas og heldur áfram. „Við vissum ekk­ert hvert við vorum að fara, en við vissum að hún hafði ákveðna sýn og það voru ákveðnir hlutir sem hún vildi fjalla um, enda er myndin ekki beint klass­ísk saga, hún fjallar meira um til­finn­ingar, ekki vits­muna­leg nálgun heldur frekar lík­am­leg og til­finn­inga­leg. Og það þurfti rosa­legt hug­rekki, hjá okkur öllum, að þora að stökkva í þetta hyl­dýpi og þora að sýna þessa við­kvæmni, kafa inn í þessar til­finn­ingar. Það var mjög þakk­látt fyrir mig að fá að sýna þessa hlið og það hefði aldrei verið hægt nema maður treysti henni, að hún væri ekki að mis­nota mann í ein­hverju til­finn­inga­klámi. Þetta var alltaf gert með ítr­ustu virð­ingu. Maður fann fyrir því, virð­ingu gagn­vart öllum.“

Christian Fjöl­fatl­aður maður með skakka útlimi, skakka kjálka og útstæðar tennur ræðir við Tómas um lík­ama sinn og leggur áherslu á augu sín og typpi.

Sem dæmi um hvernig talað er um lík­ama í mynd­inni má nefna sam­ræður Tómasar og Christians, en sá síð­ar­nefndi er fjöl­fatl­aður, með skakka útlimi, skakka kjálka og útstæðar tennur. En aðspurður um eigin lík­ama leggur hann áherslu á að hann sé með fal­leg augu og mynd­ar­legt typpi. Á móti rifjar Tómas upp þegar hann missti hárið þrettán ára og hvaða áhrif það hafði á hann. En hversu mikið er af honum sjálfum í mynd­inni?

„Það skiptir í raun ekki máli. Sem galdra­maður ertu ekki að segja hvernig þú tekur kan­ín­una úr hatt­inum. Karakt­er­inn skiptir máli, ég er auka­at­riðið. Myndin snýst ekk­ert um að ég sé Tómas – við höldum okkar nöfnum, en þar set ég mörkin með hversu mikið mig langar að bjóða blaða­mann­inum inn til mín.“

Laura Benson, ein mót­leik­kona Tómasar, tók sér­stak­lega fram á blaða­manna­fundi dag­inn áður að hún ætti ekk­ert sam­eig­in­legt með sinni per­sónu á meðan aðrir voru óræð­ari í svörum. En vissi Tómas að hversu miklu leyti mót­leik­ar­arnir væru í karakter?

„Ég hef engan áhuga á því að vita um þeirra helstu leynd­ar­mál, ekk­ert frekar en maður hafi áhuga á gulu press­unni. Ég er bara í móment­inu með þeim í þessum aðstæðum að upp­götva sann­leika sen­unnar, mér er nokkuð sama hvort þetta sé hennar saga eða ekki, það kemur mér ekk­ert við, það er hennar per­sónu­lega val. Ég hef ekki þessa þörf fyrir að þefa af óhreina tauinu hjá öllum.“

En ef slúð­ur­pressan er und­an­skilin þá eru flestir blaða­menn of kurt­eisir til þess að spyrja nær­göng­ulla spurn­inga um lík­ama fólks, hvort sem það er feitt, grannt eða sköll­ótt. En er þetta mis­skilin til­lits­semi, þurfum við mögu­lega að ræða þetta til að losa um tabúin?

„Ég er ekki sköll­óttur leik­ari, ég er bara leik­ari, ég vil ekki tak­marka mig við það“

„Það fer auð­vitað bara eftir því hvort það sé gert af virð­ingu eða á hvaða hátt það er gert og svo­leiðis. Ég er ekk­ert að fela það að ég sé hár­laus. Mér finnst það líka mik­il­vægt að ég er ekki sköll­óttur leik­ari, ég er bara leik­ari, ég vil ekki tak­marka mig við það.“

Það er um margt óvenju­leg upp­lifun að horfa á mynd sem snýst jafn­mikið um ákveðnar grunn­hug­myndir um sjálfið og lík­amann, þetta er mynd sem væri stundum gott að geta sett á pásu til þess að hug­leiða sumar þessar hug­myndir betur. Tómas segir mér að þau hafi meðal ann­ars lesið mikið um efnið, bækur eins og Arousal, „sem fjallar um blæti í kyn­lífi og hvernig það kemur úr frum­bernsku, sem var eitt­hvað sem við fjöll­uðum um. Það fer fyrir brjóstið á mörgum og mörgum finnst það erfitt því það er verið að fara inn í þetta tabú. Ég get alveg skilið það. En þá er það líka speg­ill fyrir áhorf­and­ann, af hverju er þetta óþægi­legt? Það býður upp á þá spurn­ingu.“

Adina Leik­stjór­inn hafði mjög skýra sýn á það hvað hún vildi og nálg­að­ist efni­við­inn af mik­illi virð­ingu og nær­gætni. Margt af því sem Tómasi fannst erf­ið­ast og per­sónu­leg­ast var klippt út.

Baggarnir sem við fæðumst með

En hvernig var und­ir­bún­ingnum háttað fyrir svona óvenju­lega mynd?

„Þessi mynd sner­ist bara um að sleppa tök­unum og ekki hugsa fyr­ir­fram um neitt, bara mæta eins og opin bók og leyfa hlut­unum að ger­ast. En myndin sjálf, hún er bara topp­ur­inn af ísjak­anum af öllu því efni sem við tókum upp. Margt af því erf­ið­asta er ekki í mynd­inni, það sem mér fannst erf­ið­ast og per­sónu­leg­ast var klippt út. Hún [Adina leik­stýra] er með ákveðna hug­mynd sem hún er að reyna að miðla og þetta var hennar klipp. Þetta er líka tengt henni sjálfri og hún er í mynd­inni og við erum speg­ill hennar. Þannig að sumt var of per­sónu­legt og of langt frá því að spegla hennar sýn.“

Að sumu leyti virkar per­sóna leik­stýrunnar Adinu bæði eins og vís­inda­maður og heil­ari, og kall­ast jafn­vel á við stóra bróður Orwells. Hjá Adinu er kvik­mynda­vélin nán­ast eins og með­ferð­ar­úr­ræði – en mynd­rænt erum við minnt á að hún getur líka verið eft­ir­lit­stæki.

„Hennar tengsl við sína móður og þung­lyndi og þessi bæl­ing ...“ 

Á blaða­manna­fund­inum ræddi hún um hvernig upp­haf­legar hug­myndir hennar um lík­ama hefðu allar reynst rangar – og þannig væri myndin til­raun til þess að end­ur­upp­götva hvað nánd sner­ist um og því hefði hún leitað uppi fólk sem væri álíka þenkj­andi og til­búið í þennan leið­angur.

En þótt leik­hóp­ur­inn sé fjöl­þjóð­legur og talið á ensku þá velti ég fyrir mér hvort þessi mynd sé mögu­lega rúm­ensk­ari en virð­ist, að hversu miklu leyti er leik­stýran að birta okkur mynd af rúm­ensku sam­fé­lagi, sam­fé­lagi sem hefur átt erfitt með að upp­ræta land­læga spill­ingu Ceaucescu-áranna?

„Algjör­lega,“ svarar Tómas þessum hug­leið­ingum mínum. „Hennar tengsl við sína móður og þung­lyndi og þessi bæl­ing ... það eru hlutir sem er verið að fjalla um sem koma rosa­lega mikið þaðan og hafa erfst kyn­slóð fram að kyn­slóð og það er erfitt að klippa á þennan streng. En við tölum öll um mæður okkar í mynd­inni, án þess að það sé endi­lega akkúrat rétt. En þetta snýst líka bara um hvaða bagga við fæð­umst með og hvernig náum við að frelsa okkur undan þeim?“

Líkfundarmálið fyrir austan

Tómas býr bæði á Íslandi og í Los Angeles þessi miss­erin og vinnur á báðum stöðum. En hvað er næst á dag­skrá?

„Ég kláraði síð­asta vetur mynd sem heitir Undir hala­stjörnu og kemur núna í haust.“

Lík­fund­ar­máliðNæsta verk­efni á dag­skrá er mynd sem Tómas kláraði síð­asta vetur og heitir Undir hala­stjörnu og kemur út í haust. Myndin fjallar um lík­fund­ar­málið á Nes­kaups­stað.

Myndin fjallar um lík­fund­ar­málið svo­kall­aða í Nes­kaup­stað og þótt per­sóna Tómasar sé byggð á raun­veru­legri per­sónu þá er hann ekki að reyna að líkja eftir honum. „Ég bý bara til annan karakter, ég lít allt öðru­vísi út og er ekki að reyna að breyta því neitt. En ég fór í rann­sókn­ar­vinnu, bæði með fíklum og fyrr­ver­andi fíklum, og sá þar margt ógn­vekj­andi.“

En hvernig vinna þeir úr sög­unni? „Sagan byrjar í Eist­landi og svo fylgir maður sög­unni til enda fyrir austan. Þetta er ekki um eit­ur­lyf sem slík heldur um þessa tra­gedíu sem þessir karakt­erar lenda í,“ en Lit­há­arnir í raun­veru­lega mál­inu eru nú orðnir eist­neskir og að sögn Tómasar er áherslan mjög jöfn á íslenskar og eist­neskar per­sónur sög­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár