Eyþór og útgerðin fjármagna 284 milljóna tap Moggans

Móð­ur­fé­lag í eigu aðila í sjáv­ar­út­vegi og lög­mennsku auk Eyþórs Arnalds borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks fjár­magna tap­rekstur Morg­un­blaðs­ins í fyrra. Laun til stjórn­enda námu 111 millj­ónum króna.

Eyþór og útgerðin fjármagna 284 milljóna tap Moggans
Davíð Oddsson Tap­rekstur Morg­un­blaðs­ins er fjár­magn­aður af móð­ur­fé­lagi þess að mestu í eigu útgerð­ar­manna. Mynd: Geirix

 Rekstr­ar­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, Árvakur ehf., tap­aði rúmum 284 millj­ónum króna á árinu 2017. Tap Þórs­merkur, móð­ur­fé­lags Árvakurs, var álíka mikið og skýrist alfarið af rekstri dótt­ur­fé­lags­ins. Þórsmörk er í eigu ýmissa aðila í sjáv­ar­út­vegi og lög­mennsku, auk Eyþórs Arnalds, borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Í árs­reikn­ingi félags­ins kemur fram að eigið fé Árvakurs hafi verið jákvætt um 800 millj­ónir árið 2007. Heild­ar­laun og þókn­anir til stjórn­enda námu kr. 111.088.897, en fram kom í tekju­blaði Frjálsrar versl­unar að launa­tekjur Davíðs Odds­sonar rit­stjóra hafi verið yfir 68 millj­ónir króna á árinu. Hluti af þeirri upp­hæð eru eft­ir­laun, en sem fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra fær Davíð rúmar 1,6 millj­ónir króna á mán­uði frá íslenska rík­inu sam­kvæmt eft­ir­launa­lög­unum sem hann stóð að sjálfur. Þá kom fram í tekju­blað­inu að laun Haraldar Johann­es­sen, rit­stjóra og fram­kvæmda­stjóra Árvakurs, væru rúmar 52 millj­ónir króna á ári.

Eyþór Arnalds stærsti hluthafinn

Dótt­ur­fé­lög …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár