Sátt um óskýr lög Ný heild­ar­lög um útlend­inga voru sam­þykkt í þverpóli­tískri sátt, en skila­boð lög­gjafans eru um margt óskýr, til dæmis um mál hæl­is­leit­enda sem telj­ast í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu. Hér veifar albanskur alvar­lega veikur drengur bless þegar fjöl­skyldu hans var vísað úr landi að næt­ur­lagi. Alþingi veitti fjöl­skyld­unni rík­is­borg­ara­rétt til að hún gæti snúið aftur og fengið lækn­is­að­stoð fyrir dreng­inn. Mynd: Kristinn Magnússon

Alþingi hætti við réttarbót fyrir fólk í viðkvæmri stöðu

Ákvarð­ana­fælni og óskýr skila­boð lög­gjafans hafa spilað upp í hend­urnar á íhalds­sömum útlend­inga­yf­ir­völdum, en kæru­nefnd útlend­inga­mála slær ítrekað á fingur Útlend­inga­stofn­unar.

Breyt­ingar sem Alþingi gerði á frum­varpi Ólafar Nordal heit­innar til nýrra heild­ar­laga um útlend­inga sum­arið 2016 fólu í sér að hætt var við að lög­festa að hæl­is­um­sóknir fólks í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu skyldu almennt teknar til efn­is­með­ferðar. 

Hæl­is­leit­endur sem til­heyra þessum hópi eru til dæmis fylgd­ar­laus börn, þung­aðar konur, fatlað fólk, fórn­ar­lömb mansals, þolendur kyn­ferð­is­of­beldis og ein­stæðir for­eldrar með ung börn. 

Und­an­farin ár hefur Útlend­inga­stofnun ítrekað vísað fólki í slíkri stöðu úr landi án efn­is­legrar með­ferðar, en stofn­unin styðst jafnan við þrönga og íhalds­sama túlkun á útlend­inga­lögum.

Í við­kvæmri stöðuAthygli vakti þegar Útlend­inga­stofnun neit­aði far­lama manni og ell­efu ára gam­alli dóttur hans um efn­is­með­ferð sum­arið 2017 þrátt fyrir að þau væru metin í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu.

Kæru­nefnd útlend­inga­mála hefur gert alvar­legar athuga­semdir við vinnu­brögð og máls­með­ferð Útlend­inga­stofn­unar og að vissu leyti hnikað fram­kvæmd útlend­inga­laga í frjáls­ræð­isátt.

Nefndin telur þó, í ljósi breyt­ing­anna sem gerðar voru á útlend­inga­frum­varpi þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra sum­arið 2016, að gild­andi lög leggi ekki þá skyldu á stjórn­völd að taka alltaf mál hæl­is­leit­enda í við­kvæmri stöðu til efn­is­með­ferðar. Rauði kross­inn er ann­arrar skoð­unar og telur vilja lög­gjafans skýran um einmitt þetta. Alþingi hefur þó gert fátt til að renna stoðum undir þá túlkun eða stað­festa slíkan vilja. Raunar hefur lög­gjaf­inn setið þegj­andi hjá meðan stjórn­völd vísa ítrekað fólki í við­kvæmri stöðu úr landi án efn­is­með­ferðar. Þá hefur meiri­hluti Alþingis veitt dóms­mála­ráð­herra, Sigríði Á. Andersen, póli­tískt svig­rúm og stuðn­ing til að setja reglu­gerðir sem þrengja enn frekar að rétt­indum hæl­is­leit­enda. 

Orðalagi breytt í þverpólitískri sátt

Í upp­runa­legu frum­varpi til nýrra útlend­inga­laga, sem byggði á vinnu þverpóli­tískrar þing­manna­nefndar, var mælt fyrir um að taka skyldi hæl­is­um­sóknir til efn­is­með­ferðar „ef útlend­ing­ur­inn hefur slík sér­stök tengsl við landið að nær­tæk­ast sé að hann fái hér vernd eða ef sér­stakar ástæður mæla ann­ars með því, til dæmis ef umsækj­andi er í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu“. Benti Rauði kross­inn á að með þessu væri loks­ins „tekið af skarið um það að umsókn skuli tekin til efn­is­með­ferðar þegar um ein­stak­ling í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu er að ræða“ og í því fælist mikil rétt­ar­bót. 

Við þing­lega með­ferð máls­ins lagði hins vegar alls­herjar- og mennta­mála­nefnd til að orða­lagi ákvæð­is­ins yrði breytt og setn­ingin „til dæmis ef umsækj­andi er í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu“ felld út. „Við leggjum til breyt­ingu á ákvæð­inu og bendum á að meta þurfi bæði aðstæður ein­stak­lings og aðstæður og ástand í því ríki sem senda á hann til, en þetta er í 2. mgr. 36. gr,“ sagði Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, þá þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis. Í nefnd­ar­á­liti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar var áréttað að „með sér­stökum ástæðum er vísað til þess að ein­stak­lingar geta verið í við­kvæmri stöðu“ en jafn­framt full­yrt að „meta þurfi bæði aðstæður ein­stak­lings og aðstæður og ástand í því ríki sem senda á hann til“. Að öðru leyti var ekki rætt um þessa til­teknu breyt­ingu á Alþingi og náð­ist þverpóli­tísk sátt um hana líkt og annað sem nefndin lagði til. Samkvæmt túlkun útlend­inga­yf­ir­valda, kæru­nefndar útlend­inga­mála og Útlend­inga­stofn­unar, fólst í breyt­ing­unum á frum­varpi Ólafar Nordal að lög­gjaf­inn hætti við að lög­festa að umsóknir fólks í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu skyldu ávallt teknar til efn­is­með­ferðar. 

Ný heild­ar­lög um útlend­inga voru sam­þykkt með stuðn­ingi allra flokka þann 2. júní 2016, en Brynjar Níelsson og Ásmundur Frið­riks­son úr Sjálf­stæð­is­flokknum sátu hjá. Hjörtur Bragi Sverr­is­son, for­maður kæru­nefndar útlend­inga­mála, bendir á það í árs­skýrslu nefnd­ar­innar fyrir árið 2017 að þegar ný útlend­inga­lög voru sam­þykkt á Alþingi árið 2016 átti eftir að bæta úr ýmsum ann­mörkum á laga­text­anum. Enn í dag sé ákvæði um dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða „eins og hálf­klárað í lög­unum“. Fyrir vikið hafi stjórn­völd þurft að reiða sig á lög­skýr­ing­ar­gögn til að ljá lög­unum merk­ingu og geta afgreitt hæl­is­um­sóknir. „Ýmsir aðrir gallar eru á lög­unum og tals­verð vinna er óunnin við lag­fær­ingu þeirra,“ skrifar Hjörtur. 

 

Unnur Brá Kon­ráðs­dóttirVar for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis þegar ný útlend­inga­lög voru sam­þykkt árið 2016.

Óskýr „vilji löggjafans“ 

Alþingi hefur aldrei slegið því föstu með ótví­ræðum hætti að við­kvæm staða hæl­is­leit­enda skuli und­an­tekn­ing­ar­laust telj­ast til sér­stakra ástæðna og kalla á efn­is­með­ferð. Engu að síður hafa þing­menn full­yrt að það sé „vilji lög­gjafans“ að ávallt skuli taka umsóknir fólks í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu til efn­is­með­ferðar. 

Þegar for­menn allra flokka á Alþingis nema Sjálf­stæð­is­flokks­ins lögðu fram frum­varp um rétt­ar­bætur fyrir barna­fjöl­skyldur sem leita hælis á Íslandi í lok sept­em­ber 2017 kom eft­ir­far­andi máls­grein fram í grein­ar­gerð: „Árétt­aður skal sá vilji lög­gjafans að ávallt skuli taka til efn­is­legrar með­ferðar umsóknir um alþjóð­lega vernd ef umsækj­andi er í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlend­inga, líkt og fram kom í athuga­semdum við 2. mgr. 36. gr. frum­varps þess sem varð að gild­andi lögum um útlend­inga.“ Þarna er vísað til athuga­semda við upp­runa­lega ákvæðið í laga­frum­varpi Ólafar Nordal frá 2016 sem tók breyt­ingum í með­förum þings­ins með þeim afleið­ingum að setn­ingin „til dæmis ef umsækj­andi er í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu“ féll út. 

Í júlí síð­ast­liðnum fjall­aði Stundin um fræði­grein eftir Arndísi A. K. Gunn­ars­dóttur, lög­fræð­ing og dokt­or­snema við Strass­borg­ar­há­skóla, sem þá hafði birst í Úlfljóti, rit­rýndu tíma­riti laga­nema við Háskóla Íslands. Í grein Arndísar eru færð rök fyrir því að orða­lag í nefnd­ar­á­liti sem meiri­hluti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar lagði fram þegar útlend­inga­lögum var breytt í þágu barna­fjöl­skyldna haustið 2017 hafi haft þrengj­andi áhrif á túlkun kæru­nefndar útlend­inga­mála á 2. mgr. 36. gr. laga um útlend­inga þar sem fjallað er um efn­is­með­ferð hæl­is­um­sókna vegna sér­stakra ástæðna. Vitnar Arndís til mála þar sem hæl­is­leit­endur í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu fengu ekki efn­is­með­ferð í ljósi þess að nefndin taldi þá ekki myndu eiga erfitt upp­dráttar í við­töku­ríki. „Kæru­nefnd útlend­inga­mála virð­ist […] túlka hin nýju lög­skýr­ing­ar­gögn með þeim hætti að það að umsækj­andi muni eiga erfitt upp­dráttar í við­töku­landi sé í raun for­senda þess að það að við­kom­andi sé álit­inn í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu telj­ist til sér­stakra ástæðna í skiln­ingi 2. mgr. 36. gr. laga um útlend­inga nr. 80/2016,“ skrif­aði Arndís. 

Þegar Stundin leit­aði við­bragða Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, sem var einn af flutn­ings­mönnum umrædds nefnd­ar­á­lits, sagði hún að með túlk­un­inni sem Arndís fjall­aði um hefði kæru­nefndin „snúið vilja lög­gjafans á haus“, enda hefði ætl­unin með nefnd­ar­á­lit­inu verið að „árétta þann vilja lög­gjafans“ að tryggja að ein­stak­lingar í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu fengju ávallt efn­is­með­ferð á Íslandi. 

Ef rýnt er í þing­skjöl vegna breyt­inga und­an­far­inna ára á útlend­inga­lögum blasir við að Alþingi sló því aldrei föstu að hæl­is­leit­endur í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu skyldu alltaf fá efn­is­með­ferð. Rétt­ar­bótin sem Rauði kross­inn batt vonir við árið 2016 varð ekki að veru­leika enda breytt­ist ákvæðið úr laga­frum­varp­inu frá 2016 í með­förum þings­ins og hafa því útlend­inga­yf­ir­völd ekki talið athuga­semdir sem fylgdu upp­runa­legu ákvæði hafa sér­stakt lög­skýr­ing­ar­gildi.  

Lögskýringargögnin leiddu til fleiri hælisveitinga

Í nefnd­ar­á­lit­inu frá 2017 kemur fram að alls­herjar- og mennta­mála­nefnd hafi verið bent á að „lög­skýr­ing­ar­gögn væru ekki skýr“ um að ávallt skyldi taka umsóknir fólks í við­kvæmri stöðu til efn­is­með­ferðar og „var­huga­vert geti verið að nýtt þing árétti vilja fyrri þinga án þess að því fylgi breyt­ingar á lögum“. Í stað þess að „árétta“ þann óljósa vilja hnykktu nefnd­ar­menn á því að taka skyldi umsóknir hæl­is­leit­enda til efn­is­legrar með­ferðar ef „sér­stakar ástæður“ mæltu með því. Skil­greindu þeir „sér­stakar ástæður“ á þann veg að „að ein­stak­lingar geta verið í við­kvæmri stöðu sem leiði til þess að þeir muni eiga erfitt upp­dráttar í við­töku­landi“. Þetta árétt­aði svo Nichole Leigh Mosty, þáver­andi þing­kona Bjartrar fram­tíðar, í fram­sögu­ræðu sinni um nefnd­ar­á­litið og sagði að það ætti „ekki að vera neinn vafi á því hvað átt er við með sér­stakri stöðu“. Skil­grein­ing nefnd­ar­manna sam­rým­ist vel ummæl­unum sem Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir lét falla þegar ákvæð­inu í frum­varpi Ólafar Nordal var breytt árið 2016: „Við leggjum til breyt­ingu á ákvæð­inu og bendum á að meta þurfi bæði aðstæður ein­stak­lings og aðstæður og ástand í því ríki sem senda á hann til“. 

Kæru­nefnd útlend­inga­mála túlk­aði nefnd­ar­á­litið á þann veg að lög­gjaf­inn teldi við­kvæma stöðu hæl­is­leit­enda eiga að hafa þyngra vægi en áður hefði tíðkast. Auk þess bæri að líta svo á að þegar við­kvæm staða hæl­is­leit­enda leiddi til þess að þeir myndu eiga erfitt upp­dráttar í við­töku­landi fæli slíkt í sér „sér­stakar ástæður“ og þar með yrði að taka umsókn­ina til efn­is­með­ferðar. 

„Það sem kæru­nefndin gerði var að 
víkka út túlkun orða­sam­bands­ins“

Hjörtur Bragi Sverr­is­sonfor­maður kæru­nefndar útlend­inga­mála.

„Það sem kæru­nefndin gerði á grund­velli þessa nefnd­ar­á­lits, athuga­semda við laga­frum­varpið sem varð að lögum nr. 81/2017, og ummæla í fram­sögu­ræðu Nichole Leigh Mosty var að víkka út túlkun orða­sam­bands­ins „sér­stakar ástæður“ í 2. mgr. 36. gr. laga um útlend­inga og gefa við­kvæmri stöðu umsækj­enda aukið vægi and­spænis sjón­ar­miðum sem tengj­ast meðal ann­ars skil­virkni við með­ferð umsókna og mik­il­vægis sam­vinnu aðild­ar­ríkja Dyfl­inn­ar­sam­starfs­ins,“ segir Hjörtur Bragi Sverr­is­son, for­maður kæru­nefnd­ar­innar, í tölvu­pósti til Stund­ar­innar. „Þessi túlkun nefnd­ar­innar hefur leitt til þess að fleiri mál umsækj­enda um vernd hafa fengið efn­is­með­ferð en raunin hefði orðið ef þess­ara lög­skýr­ing­ar­gagna hefði ekki notið við.“  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár