Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ef við lyftum upp gólfinu þá lyftist þakið með“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, fagnar kafla­skilum í stétta­bar­átt­unni þar sem byrjað er að hlusta á gras­rót­ina og koma auk­inni rót­tækni í bar­átt­una um kjör alþýðu. Hann segir að yfir­völd megi búast við átökum í vetur þegar kjara­samn­ingar losna ef þeir halda áfram á núver­andi braut.

Þegar Ragnar Þór Ing­ólfs­son var í fyrra kos­inn for­maður VR, stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins, töldu margir að hann og rót­tæku skoð­anir hans væru ein­angr­aðar og myndu ekki hafa mikil áhrif. Ragnar komst fyrst í stjórn VR í hall­ar­bylt­ingu 2009 og hafði lengi talað fyrir því að stétt­ar­hreyf­ingin ætti að berj­ast fyrir hags­munum alþýð­unnar en ekki fjár­mála­afl­anna, og fram­boð hans til for­manns var upp­reisn gegn „risa­eðl­unum“ sem hafa að hans sögn farið með stjórn ASÍ of lengi. Hann lýsti sér­stak­lega yfir van­trausti gegn Gylfa Arn­björns­syni, for­seta ASÍ, sem hefur farið með emb­ættið í ára­tug.

Ekki er víst hvort yfir­burða­sigur Ragnars gegn sitj­andi for­manni VR hafi hafið atburða­rás bylt­inga innan fleiri félaga eða sé hluti af nýjum rót­tæk­ari tíð­ar­anda, en ári síðar fór fram fyrsta lýð­ræð­is­lega kosn­ing Eflingar, næst­stærsta stétt­ar­fé­lag Íslands, þar sem rót­tækur sós­í­alisti bar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár