„Af hverju á ég að beygja mig undir þá sem eru í gröfinni?“

Ragnar Aðal­steins­son gjör­breytti afstöðu sinni til stjórn­mála þegar hann sá hvernig nöktu valdi var beitt gegn mót­mæl­endum, en ferð­að­ist um heim­inn og ílengd­ist á Spáni á tímum ein­ræð­is­herr­ans Franco áður en hann lagði lög­fræði fyrir sig. Hann er sjö barna faðir, faðir tveggja ung­linga, sem berst fyrir félags­legu rétt­læti og mann­rétt­indum. Eftir 56 ára feril segir hann póli­tík ráða för innan dóm­stól­anna, Hæsti­réttur hafi beygt sig fyrir lög­gjaf­ar­vald­inu og brugð­ist skyldu sinni. Því sé óum­flýj­an­legt að taka upp nýja stjórn­ar­skrá, en meiri­hluti Alþingis hunsi vilja fólks­ins og gæti frekar hags­muna hinna efna­meiri, þeirra sem hafa völdin í þjóð­fé­lag­inu.

Vill hafa áhrif á samfélagið Ragnar Aðalsteinsson, einn þekktasti lögmaður landsins, segist vilja hafa áhrif á samfélagið, hvort heldur sem er með því að reka dómsmál eða með öðrum hætti. Hann berst fyrir rétti þeirra sem standa höllum fæti í samfélaginu og vill lyfta mannréttindum í öndvegi, meðal annars með því að hér á landi verði tekin upp ný stjórnarskrá.

Ragnar Aðal­steins­son situr á skrif­stofu lög­manns­stofu sinnar, Réttar, á Klapp­ar­stíg. Á skenk sem stendur með­fram heilum lang­vegg má sjá möppur, möppur og aftur möppur fullar af skjölum er varða ríf­lega fjöru­tíu ára gam­alt mál sem hefur fylgt íslensku þjóð­inni, skipt henni upp, valdið deilum og úlfúð og skekið stjórn­málin hér á landi með næsta óheyrðum hætti. Nú stytt­ist í að enn einn kafl­inn hefj­ist í hinum svo­nefndu Guð­mundar- og Geir­finns­málum, hugs­an­lega lokakafl­inn. Þar verður Ragnar þátt­tak­andi og það ekki í fyrsta sinn.

Ragnar Aðal­steins­son er einn þekkt­asti lög­maður þjóð­ar­innar og hefur um ára­tuga­skeið komið að lög­fræði­legum úrlausn­ar­efnum, einka­málum og saka­málum, sem hafa haft veru­lega þýð­ingu fyrir íslenskt sam­fé­lag og íslenskt rétt­ar­far. Hann und­ir­býr sig nú af kappi fyrir end­ur­upp­töku þessa lang­þekktasta saka­máls Íslands­sög­unnar, Guð­mundar- og Geir­finns­máls­ins, en end­ur­upp­taka þess hefur verið ákveðin og fer mál­flutn­ingur fram í Hæsta­rétti 13. sept­em­ber næst­kom­andi. Fyrir rúmu 21 ári stóð Ragnar í þeim …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár