Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég upplifði að það væri verið að misbjóða mér“

Nýkjör­inn for­maður Eflingar, Sólveig Anna Jóns­dóttir, hefur boðað aukna rót­tækni í Eflingu til að berj­ast fyrir kjörum þeirra sem minnst mega sín. Hún seg­ist þekkja af eigin raun að koma heim „dauð­þreytt á sál og lík­ama“ og verða fyrir áfalli við að skoða heima­bank­ann.

Vald­efl­ing þeirra vald­lausu var meg­in­á­hersla Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur þegar hún vann fyrstu for­manns­kosn­ingar í sögu Eflingar fyrr í ár. Á 20 ára sögu félags­ins hafði aldrei komið fram mót­fram­boð gegn sitj­andi stjórn, en Efling er stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins á eftir VR, með um 28 þús­und félags­menn. Sólveig og listi hennar hlutu um 80 pró­sent atkvæða. Hún ræðir hér um sós­íal­íska stétta­bar­áttu, en hún segir að það hafi tekið hana mörg ár að leið­ast inn í aktí­visma. „Heima hjá mér var alltaf talað um stétta­bar­áttu af mik­illi aðdáun,“ segir hún. „En ég var ung­lingur á 10. ára­tugnum og eins og flestir muna frá þeim tíma var þá ekki mjög vin­sælt að vera rót­tæk vinstri mann­eskja. Ég var mjög póli­tísk, en tal­aði ekki endi­lega um það.“

Sólveig segir að það hafi allt breyst þegar hún flutti 25 ára til Banda­ríkj­anna og sá með eigin augum gíf­ur­lega stétta­skipt­ingu sem var þar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hótel Adam

Niðurlægð og svikin á Hótel Adam
AfhjúpunRéttindabrot á vinnumarkaði

Nið­ur­lægð og svikin á Hótel Adam

Eigandi Hótels Adam var dæmdur til að greiða tékk­neskri konu, Kristýnu Králová, tæpar þrjár millj­ónir vegna van­gold­inna launa. Hún segir frá starfs­að­stæðum sínum í við­tali við Stundina. Hún seg­ist hafa verið látin sofa í sama rúmi og eig­and­inn þar sem hann hafi ítrekað reynt að stunda með henni kyn­líf. Hún segir að hann hafi líka sann­fært sig um að lög­reglan myndi hand­taka hana því hún væri ólög­legur inn­flytj­andi. Eig­and­inn neitar ásök­unum hennar og segir að það sé „ekk­ert að frétta“.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár