Ungur Sjálf­stæðis­maður gerður að stjórnar­for­manni opin­bers fyrir­tækis

Ísak Ernir Krist­ins­son var skip­aður í stjórn Kadeco í síð­ustu viku af Bjarna Bene­dikts­syni. Félagið Kadeco er þró­un­ar­fé­lag sem fer með þær fast­eignir sem áður voru í umsjá Banda­ríkja­hers.

Ungur Sjálf­stæðis­maður gerður að stjórnar­for­manni opin­bers fyrir­tækis
Ísak Ernir Krist­ins­son Ísak starfar sem flug­þjónn og stundar nám í við­skipta­fræði við Háskól­ann í Reykja­vík.

Nýr stjórn­ar­for­maður Kadeco er hinn 24 ára gamli Ísak Ernir Krist­ins­son en hann var skip­aður í stjórn­ina í síð­ustu viku. Ísak, sem hefur verið virkur í flokks­starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá 16 ára aldri, var skip­aður í stjórn­ina af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Hann tekur við for­mennsku stjórnar af Georgi Brynjar­syni hag­fræð­ingi. Sjálfur er Ísak flug­þjónn hjá Wow air ásamt því sem hann stundar nám við við­skipta­fræði í HR. Laun stjórn­ar­for­manns eru 270 þús­und krónur á mán­uði.

Þá hefur Ísak gegnt stöðu for­manns Heimis, félags ungra Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­nesbæ, setið í stjórn Sambands ungra Sjálf­stæð­is­manna ásamt því að hafa gegnt for­mennsku í Sjálf­stæð­is­fé­lagi Kefla­víkur. Þar að auki var hann vara­bæj­ar­full­trúi í Reykja­nesbæ á síð­asta kjör­tíma­bili.

Félagið Kadeco er þró­un­ar­fé­lag sem fer með þær fast­eignir sem áður voru í umsjá Banda­ríkja­hers. Samkvæmt sér­stökum þjón­ustu­samn­ingi sér félagið um þróun og útleigu þess lands sem áður til­heyrði hernum. Í til­kynn­ingu félags­ins um aðal­fund þess kom fram að félagið hefði selt nán­ast allar fast­eignir sem það hafði í umsýslu sinni. Hins vegar væru ekki upp áform um að hætta starf­semi þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár