Börn þvinguð til umgengni við ofbeldismenn

Sýslu­maður horfir kerf­is­bundið fram­hjá gögnum um kyn­ferð­is­brot og heim­il­is­of­beldi þegar teknar eru ákvarð­arnir um umgengni og dag­sektir. Mæður eru látnar gjalda fyrir að greina frá ofbeldi ef það leiðir ekki til ákæru og stúlka var þvinguð til að umgang­ast föður sem var dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn henni.

Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lítur ítrekað fram hjá vís­bend­ingum um heim­il­is­of­beldi og kyn­ferð­is­brot þegar teknar eru ákvarð­anir um umgengni for­eldra við börn. 

Rann­sóknir á rétt­ar­fram­kvæmd í umgengn­is­málum á fyrsta ára­tug þess­arar aldar sýna að sýslu­manns­emb­ætti og dóms­mála­ráðu­neytið þving­uðu börn með kerf­is­bundnum hætti til umgengni við ofbeld­is­menn. 

Allt fram til árs­ins 2013 var ofbeldi föður gegn móður almennt ekki talið hafa þýð­ingu við ákvörðun sýslu­manns um umgengni föður við börnin sín.

Þá þarf ekki að leita nema örfá ár aftur í tím­ann til að finna dæmi um að barn sé skikkað til að umgang­ast for­eldri sem hefur verið dæmt fyrir kyn­ferð­is­brot gegn því.  

Enn í dag kveður sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu upp úrskurði þar sem áhyggjur fag­fólks og vís­bend­ingar um kyn­ferð­is­brot, jafn­vel gögn um fram­burð barna hjá með­ferð­ar­að­ilum, eru slegnar út af borð­inu sem „til­hæfu­lausar ásak­anir móður“. 

Í umgengn­is­úr­skurði sem sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kvað upp í fyrra er sú stað­reynd að móðir sak­aði barns­föður sinn um heim­il­is­of­beldi án þess að það leiddi til ákæru notuð gegn henni til að rétt­læta aukna umgengni föð­ur­ins við barnið.

Í öðrum úrskurði sem Stundin hefur undir höndum eru vott­orð fag­fólks og frá­sagnir barna af meintum kyn­ferð­is­brotum föður huns­aðar og kveð­inn upp úrskurður um aukna umgengni þeirra við föð­ur­inn undir þeim for­merkjum að bæta skuli upp „tengsla­rof“ sem hafi orðið milli feðgina.  

Báðir úrskurð­irnir eru kveðnir upp af sýslu­manns­full­trú­anum Maríu Júlíu Rún­ars­dóttur, en hún hefur látið mikið að sér kveða í opin­berri umræðu um umgengn­is­mál und­an­farin ár. María hefur beitt sér af hörku fyrir því að umgengni­stálm­anir verði gerðar refsi­verðar og er jafn­framt ein­hver ötul­asti tals­maður kenn­ing­ar­innar um svo­kallað „for­eldrafirr­ing­ar­heil­kenni“ á Íslandi. 

„Smá barna­girnd í öllum“Geð­lækn­ir­inn Richard Gardner, upp­hafs­maður kenn­ing­ar­innar um „for­eldrafirr­ing­ar­heil­kenni“ taldi börn hafa til­hneig­ingu til að tæla sak­lausa karl­menn til kyn­maka og ásaka þá svo rang­lega um mis­notkun.

Samkvæmt kenn­ing­unni er algengt að mæður, drifnar áfram af vit­firrtu hatri á feðrum, inn­ræti börnum með mark­vissum hætti rang­hug­myndir um að feð­urnir hafi mis­notað þau. Kenn­ing­unni um for­eldrafirr­ingu hefur verið hafnað með afger­andi hætti af sam­tökum geð­lækna, sál­fræð­inga, sak­sókn­ara og dóm­ara, enda þykir hún ekki stand­ast vís­inda­legar kröfur. María Júlía telur hins vegar að for­eldrafirr­ing sé alvar­legt vanda­mál á Íslandi og hefur skrifað meist­ara­prófs­rit­gerð í lög­fræði um hug­takið. Þar rekur hún ýmis ein­kenni for­eldrafirr­ingar sem hún segir að lög­fræð­ingar sem koma að umgengn­is­málum geti verið vak­andi fyrir. 

Við­mæl­endur Stund­ar­innar, sér­fræð­ingar í barna­rétti auk lög­fræð­inga og lög­manna sem komið hafa að umgengn­is­málum, segj­ast ítrekað hafa orðið varir við orð­ræðu og hug­mynda­fræði for­eldrafirr­ingar í rétt­ar­fram­kvæmd sýslu­manns­emb­ætta.

„Að mínu mati er ljóst að sýslu­maður hefur að ein­hverju leyti byggt á þess­ari hug­mynda­fræði þegar teknar eru ákvarð­anir um umgengni við börn eða í málum sem varða álagn­ingu dag­sekta,“ segir Sara Páls­dóttir hér­aðs­dóms­lög­maður í sam­tali við Stundina. „Mér finnst sýslu­maður oft ganga langt, t.d. fara ýmsar króka­leiðir, í þeirri við­leitni að kom­ast að ein­hverri fyr­ir­fram­gef­inni nið­ur­stöðu sem sam­ræm­ist kenn­ing­unni um for­eldrafirr­ingu. Ég veit að þetta hljómar ein­kenni­lega, en þetta er ein­fald­lega það sem ég hef kynnst í mínum störfum. Svona lítur þetta út, því miður.“

Ofbeldi gegn móður hafði „almennt engin áhrif á umgengni“

Nið­ur­stöður sýslu­manns í umgengn­is­málum eru ekki aðgengi­legar almenn­ingi. Hins vegar hafa verið fram­kvæmdar rann­sóknir á rétt­ar­fram­kvæmd­inni þar sem úrskurða sýslu­manna og ráðu­neytis er aflað á grund­velli laga­á­kvæðis um aðgang að gögnum í rann­sókn­ar­skyni. 

Rann­sak­aði rétt­ar­fram­kvæmd­inaElísabet Gísla­dóttir lög­fræð­ingur greindi rétt­ar­fram­kvæmd sýslu­manns í umgengn­is­málum árið 2009 og starf­aði um skeið hjá Umboðs­manni barna.

Elísabet Gísla­dóttir lög­fræð­ingur fram­kvæmdi slíka rann­sókn árið 2009 þegar hún skrif­aði meist­ara­prófs­rit­gerð um áhrif heim­il­is­of­beldis á ákvarð­anir í umgengnis- og for­sjár­málum. 

Elísabet greindi úrskurði sýslu­manns­ins í Reykja­vík og dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í umgengn­is­málum á tíma­bil­inu 1999 til 2009. Nið­ur­stöð­urnar voru slá­andi. Dæmin sem fjallað er um hér á eftir byggja á upp­lýs­ingum sem fram koma í rit­gerð Elísa­betar, en Stundin fékk aðgang að rit­gerð­inni við vinnslu þess­arar umfjöll­unar. Þess er gætt að engar per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar komi fram.

Árið 2005 gerði móðir kröfu um að umgengni föður við son þeirra yrði hafnað á grund­velli þess hve ofbeld­is­hneigður hann væri. Lögð voru fram gögn frá Kvenna­at­hvarf­inu og lög­reglu og fram kom að faðir beitti móður lík­am­legu og and­legu ofbeldi. Sýslu­maður dró það ekki í efa og við­ur­kenndi að lík­lega hefði dreng­ur­inn skað­ast við að horfa upp á ofbeldi gegn móður sinni. Hins vegar full­yrti sýslu­maður að „sú tog­streita og reiði sem móðir bæri til föður væri ekki síður skað­leg“. Taldi hann að gögnin sem sýndu fram á ofbeldi hefðu ekki þýð­ingu fyrir úrslit máls­ins, enda hefði „almennt séð ofbeldi for­eldris gagn­vart hinu for­eldr­inu ekki áhrif á umgengni for­eldris og barns“. Var því kröfum móð­ur­innar hafnað og kveðið á um reglu­lega umgengni drengs­ins við föður aðra hverja helgi. 

Þetta er ekki ein­stakt og óvenju­legt dæmi, því sams konar sjón­ar­mið, um að ofbeldi föður gegn móður hafi „almennt engin áhrif á umgengni“, koma fram í að minnsta kosti þremur öðrum sýslu­manns­úr­skurðum sem kveðnir voru upp á tíma­bil­inu 1999 til 2009. 

Misþyrmdi móður og gæludýri en mátti umgangast barnið

Oftast eru umgengn­is­úr­skurðir sýslu­manns stað­festir af dóms­mála­ráðu­neyt­inu, en þegar það er ekki gert kveður dóms­mála­ráðu­neytið oftar en ekki á um enn rýmri umgengn­is­rétt en sýslu­maður. 

Dæmi um slíkt er mál sem kom til kasta sýslu­manns og dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins árin 2003 og 2004. Sýslu­maður hafði kveðið á um umgengni barns við föður sinn undir óboð­uðu eft­ir­liti barna­vernd­ar­nefndar, meðal ann­ars vegna þess að mað­ur­inn hafði sýnt ofbeld­is­fulla hegðun gagn­vart móður og mis­þyrmt gælu­dýri barns­ins. Dóms­mála­ráðu­neytið komst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að fyrst fað­ir­inn hefði aðeins mis­þyrmt móð­ur­inni og gælu­dýr­inu en ekki barn­inu væri engin ástæða til að hafa eft­ir­lit með umgengni föð­ur­ins við barnið. 

Tveir eftirlitsmenn vegna skapofsa föður 

Í umgengn­is­úr­skurði sem sýslu­maður kvað upp árið 2001 kom skýrt fram að það væri afdrátt­ar­laus vilji tveggja drengja að umgang­ast ekki föður sinn. Hátterni hans vekti ótta hjá þeim, kvíða og van­líðan en jafn­framt var fram­koma föður talin svo ógn­andi að barna­vernd­ar­nefnd taldi einn eft­ir­lits­að­ila ekki duga til þess að hafa umsjón með umgengn­inni. 

Óttast að hug­mynda­fræði for­eldrafirr­ingar ráði förSara Páls­dóttir hér­aðs­dóms­lög­maður hefur orðið vör við það í sínum störfum að sýslu­maður kom­ist að nið­ur­stöðum sem geti vart átt sér aðrar skýr­ingar en að byggt sé við hug­myndum um for­eldrafirr­ingu.

Í stað þess að end­ur­skoða umgengn­ina ákvað sýslu­maður í úrskurði sínum að kveða á um að eft­ir­lits­menn­irnir yrðu tveir, einn frá barna­vernd­ar­nefnd og einn frá sýslu­manns­emb­ætt­inu. Fram kom í nið­ur­stöðu sýslu­manns að drengirnir virt­ust engin til­finn­inga­tengsl hafa við föður sinn önnur en nei­kvæð, enda hefði hann ítrekað misst stjórn á skapi sínu og sært til­finn­ingar þeirra. Þrátt fyrir þetta taldi sýslu­maður mik­il­vægt að drengirnir héldu sam­bandi við föður sinn og hittu hann áfram undir eft­ir­liti. Eft­ir­liti tveggja eft­ir­lits­manna. 

Reglubundin umgengni þrátt fyrir merki um ofbeldi

Í umgengn­is­máli frá 2006 hélt móðir barna því fram að fað­ir­inn hefði ítrekað lagt á sig hendur meðan á sam­búð þeirra stóð. Börnin höfðu sömu sögu að segja og sögð­ust ýmist sjálf hafa orðið fyrir ofbeldi eða orðið vitni að slíku gagn­vart systk­inum sínum og kærðu sig ekki um umgengni nema þá afar tak­mark­aða. Þrátt fyrir þetta komst sýslu­maður að þeirri nið­ur­stöðu að nauð­syn­legt væri að „rækta til­finn­inga­tengsl barn­anna við báða for­eldra“ með reglu­bund­inni umgengni við föður. 

Í öðru máli, tveimur árum síðar, vildu börn alls enga umgengni við föður sinn, greindu frá því að hann hefði beitt þau and­legu og lík­am­legu ofbeldi og sýndu ýmis merki þess. Engu að síður taldi sýslu­maður að það væri börn­unum fyrir bestu að umgang­ast föður sinn með reglu­bundnum hætti. 

Til eru fleiri sam­bæri­leg dæmi, svo sem sýslu­manns­úr­skurður frá 2002 þar sem dóttir manns vildi ekki umgang­ast hann og hafði kært hann fyrir að mis­þyrma sér en málið verið fellt niður. Þetta var ekki talin nægi­leg ástæða til að tak­marka umgengni. 

Á tíma­bil­inu 1999 til 2009 var aðeins einu sinni kveð­inn upp umgengn­is­úr­skurður hjá Sýslu­mann­inum í Reykja­vík þar sem fall­ist var á að umgengni for­eldris við barn teld­ist and­stæð hags­munum barns­ins. Í því máli var deilt um umgengni föður við tvær dætur sínar. Gögn máls­ins, meðal ann­ars álits­gerð frá sál­fræð­ingi, bentu sterk­lega til þess að fað­ir­inn hefði beitt eldri syst­ur­ina kyn­ferð­is­of­beldi. Sýslu­maður féllst á að hafna bæri beiðni föður um umgengni við hana, en hins vegar ákvað hann að skikka yngri dótt­ur­ina til umgengni við föður sinn undir eft­ir­liti barna­vernd­ar­nefndar.  

Ógnin jafnvel verri en ofbeldið

„Til hvers vorum við eig­in­lega að segja frá?“ spyr kona á fer­tugs­aldri, sem var barn í þessum aðstæðum rétt fyrir alda­mót. Fimm ára greindi hún móður sinni frá því að faðir hennar hefði mis­notað hana. Í kjöl­farið sótti móðir hennar um skilnað og upp­hófust þá harðar deilur um umgengni við börnin þar sem fað­ir­inn lagði stöðugt fram kærur og kvart­anir til sýslu­manns og dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins. Móðir hennar flúði á end­anum með börnin úr landi, en sneri aftur heim nokkrum mán­uðum síðar vegna hót­ana um að á hana yrðu lagðar dag­sektir. 

„Í mínum huga var þetta versta ofbeldið, hvernig pabbi beitti kerf­inu fyrir sig. Eilífar kærur varð­andi umgengni, kærur sem áttu sér jafn­vel enga stoð í raun­veru­leik­anum því við vorum alltaf að hitta hann, og meira en við vildum. Með hverri kærunni þurftum við alltaf að fara annan hring í gegnum kerfið, eins og við þyrftum alltaf að byrja upp á nýtt sem var mjög streitu­vald­andi, bæði fyrir okkur og mömmu. Við vorum alltaf að tala við fag­að­ila sem trúðu okkur aldrei, eða það hafði þá alla­vega engin áhrif á gang mála. Það var mjög vont, jafn­vel verra en mis­notk­unin. Af því að það er eitt að verða fyrir ofbeldi af hálfu ein­stak­lings, en annað þegar kerfið bregst. Van­mátt­ur­inn gagn­vart því er svo mik­ill,“ segir konan. 

„Með hverri kærunni þurftum við alltaf 
að fara annan hring í gegnum kerfið“

Mál hennar kom ítrekað til kasta Sýslu­manns­ins í Reykja­vík fram til árs­ins 2002, en þá náði hún loks­ins þeim aldri að fá að stýra því sjálf hvort hún vildi umgang­ast föður sinn – sem hún kærði sig ekk­ert um og hafði ekki viljað um langa hríð.

Konan sýndi blaða­manni Stund­ar­innar nokkur bréf sem hún skrif­aði sem barn, bæði til föður síns og félags­ráð­gjafa, þar sem hún lýsir aðstæðum sínum, sam­skiptum við föður sinn og segir mjög skýrt að hún vilji ekki hitta hann. Aðallega vegna þess að sam­skiptin við hann ollu henni miklum kvíða og óör­yggi, útskýrir hún fyrir blaða­manni, og ekki síst vegna þess að í heim­sóknum hjá honum hafi hann ítrekað reynt að sann­færa hana um að hann hefði aldrei brotið gegn henni. Auk þess greindi yngri systir hennar frá því að faðir þeirra hefði brotið gegn sér í þessum heim­sóknum. 

Mis­notk­unin var aldrei kærð til lög­reglu og þrátt fyrir að barna­vernd­ar­nefnd hafi fengið allar upp­lýs­ingar um málið í gegnum sýslu­manns­emb­ættið var málið aldrei með­höndlað sem barna­vernd­ar­mál, aðeins umgengn­is­mál hjá sýslu­manni. „Það trúði okkur eng­inn,“ segir konan. 

Þvinguð til umgengni við föðurinn sem nauðgaði henni

Þau dæmi sem rakin voru hér á undan sýna að umgengn­is­réttur for­eldra er gríð­ar­lega sterkur í íslenskri rétt­ar­fram­kvæmd eins og hún birt­ist á fyrsta ára­tug þess­arar aldar. 

Umgengn­is­rétt­ur­inn er svo sterkur að hann hefur hald­ist þótt mörg systk­ini lýsi sig mót­fallin því að hitta for­eldri vegna ofbeldis og jafn­vel þótt sterkar vís­bend­ingar og rök­studdar áhyggjur sér­fræð­inga af ofbeldi liggi fyrir. 

Ofbeldi föður gegn móður eða systk­ini virð­ist tak­mark­aða þýð­ingu hafa haft í ákvörð­unum um umgengni föður og barns, og það sem meira er: til eru dæmi um að Sýslu­mað­ur­inn í Reykja­vík og dóms­mála­ráðu­neytið skikki barn til að umgang­ast föður sinn þrátt fyrir að hann hafi verið dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn því. 

Í máli frá 2004 lá fyrir að faðir ungrar stúlku hafði verið dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn henni. Hún vildi alls ekki umgang­ast hann. Engu að síður ákvað sýslu­maður að neyða stúlk­una til að umgang­ast föður sinn og kval­ara undir eft­ir­liti. Dóms­mála­ráðu­neytið stað­festi úrskurð­inn. 

Barna­lögum var breytt árið 2012 og skerpt á vernd barna gegn ofbeldi. Var meðal ann­ars lög­fest að við ákvörðun umgengni bæri sýslu­manni skylda til að meta hættu á að barnið, for­eldri eða aðrir á heim­ili barns­ins hefðu orðið eða yrðu fyrir ofbeldi. Til grund­vallar þess­ari breyt­ingu lá, sam­kvæmt grein­ar­gerð frum­varps­ins, það sjón­ar­mið að „ofbeldi og van­virð­andi hátt­semi á heim­ili barns hefur almennt skað­legar afleið­ingar á and­lega og lík­am­lega heilsu barns og þroska þess í víðum skiln­ingi“. 

Hefur laga­breyt­ingin haft afger­andi áhrif á rétt­ar­fram­kvæmd sýslu­manns? Í raun er ómögu­legt að meta það út frá þeim gögnum sem eru opin og aðgengi­leg almenn­ingi. Hitt er ljóst af nýlegum sýslu­manns­úr­skurðum í umgengn­is­málum sem Stundin hefur aflað með óform­legum hætti að enn tíðkast að sýslu­maður líti fram­hjá rök­studdum áhyggjum fag­fólks af kyn­ferð­is­brotum þegar kveðnir eru upp úrskurðir um umgengni. Þá bendir ýmis­legt til þess að kenn­ingin um for­eldrafirr­ing­ar­heil­kennið lifi góðu lífi hjá emb­ætti sýslu­manns. Til marks um þetta eru úrskurðir þar sem mæðrum er bein­línis refsað fyrir að greina frá ofbeldi sem þær segja barns­föður hafa beitt sig eða börnin. 

Sigrún Sif Jóels­dóttir

Hafði áhyggjur af heimilisofbeldi

Þriðju­dag­inn 28. mars í fyrra birt­ist frétt á vef DV undir fyr­ir­sögn­inni „Skóla­stjóri Barna­skóla Hjalla­stefn­unnar mein­aði föður að sækja son sinn: „Ég er með sting í mag­anum, ég er svo hræddur.““ Frétt­inni fylgdi mynd­band sem kærasta föð­ur­ins tók af atburða­rásinni sem átti sér stað nokkrum dögum áður, þann 24. mars. Þar má sjá föður drengs­ins ríf­ast við starfs­fólk skól­ans fyrir aftan bíl þar sem barnið situr ótta­slegið í aft­ur­sæt­inu. „Ég er svo hræddur. Af hverju er verið að ríf­ast?“ spyr dreng­ur­inn meðan fað­ir­inn veifar umgengn­is­samn­ingi sem hann telur rétt­læta gjörðir sínar. 

Óttaðist um barniðSigrún Sif fór fram á umgengni undir eft­ir­liti vegna áhyggna af heim­il­is­of­beldi.

Þegar atvikið átti sér stað var móðir drengs­ins, Sigrún Sif Jóels­dóttir, stödd á skrif­stofu sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Áður hafði hún gert sitt besta til að mæta óskum föð­ur­ins um umgengni. Nú var hins vegar runnið upp fyrir henni að sú við­leitni hefði byggt á með­virkni gagn­vart ofbeldi. Hegðun drengs­ins hafði tekið stakka­skiptum eftir að hann hóf umgengni við föð­ur­inn og Sigrún hafði áhyggjur af því að hann hefði orðið fyrir and­legu ofbeldi. Þess vegna lagði hún fram beiðni til sýslu­manns og fór fram á að umgengni föð­ur­ins færi eft­ir­leiðis fram undir eft­ir­liti og í öruggu umhverfi. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnsýsla

Umboðsmaður taldi forræðið liggja hjá stjórnvaldinu en ekki ríkislögmanni
FréttirStjórnsýsla

Umboðs­maður taldi for­ræðið liggja hjá stjórn­vald­inu en ekki rík­is­lög­manni

Ákvörð­un­ar­vald um hvort bóta­skylda sé við­ur­kennd liggur hjá því stjórn­valdi sem bóta­kröfu er beint að og stjórn­völd hafa for­ræði á kröfu­gerð, rök­semdum og ágrein­ings­at­riðum þegar mál fara fyrir dóm­stóla. Þetta er afstaða umboðs­manns Alþingis sam­kvæmt ábend­inga­bréfi sem hann sendi heil­brigð­is­ráð­herra árið 2014, en for­sæt­is­ráðu­neytið gaf út yfir­lýs­ingu á föstu­dag þar sem fram kom að rík­is­lög­maður hefði „almennt for­ræði á kröfu­gerð og fram­setn­ingu hennar“.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár