Giftu sig á Ítalíu Jóhann og Amir ætl­uðu strax að ganga í hjóna­band en hér á landi voru papp­ír­arnir sem fylgdu Amír frá Íran ekki teknir gildir. Þeir gátu hins vegar gengið í hjóna­band á Ítalíu og eru loks sam­ein­aðir á ný. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ástin beygði valdið

Amir Shokrgoz­ar og Jó­hann Emil Stef­áns­son gengu í hjóna­band á Ítalíu í nóv­em­ber síð­ast­liðnum og í des­em­ber fékk Amir loks­ins að snúa aftur heim til Íslands, rúmum tíu mán­uðum eftir að honum var vísað úr landi með lög­reglu­fylgd. Þeir líta björtum augum á fram­tíð­ina og eru þakk­látir öllum þeim sem hafa veitt þeim hjálp­ar­hönd.

Síðdegis 1. febr­úar á síð­asta ári gengu Amir og Jóhann saman út af geð­deild Land­spít­al­ans, þangað sem Amir hafði tveimur dögum áður leitað eftir að hafa fengið tauga­á­fall af kvíða yfir yfir­vof­andi brott­vísun til Ítalíu. Hann hafði misst alla von þegar íslensk stjórn­völd neit­uðu að taka mál hans til efn­is­með­ferðar hér á landi og hugð­ust senda hann aftur til lands­ins þar sem hann hafði verið beittur alvar­legu kyn­ferð­is­legu ofbeldi þegar hann dvaldi þar sem flótta­maður. Það var því nið­ur­brot­inn maður sem gekk út af geð­deild þennan febr­ú­ar­dag og beint í flasið á lög­reglu­mönnum sem hand­tóku hann fyrir utan spít­al­ann og færðu í fanga­klefa. 

Þrátt fyrir að hafa sótt hann bug­aðan og í and­legu ójafn­vægi fyrir utan geð­deild, og þrátt fyrir að hafa metið hann í svo mik­illi sjálfs­vígs­hættu að hann var klæddur úr öllum fötum í fang­els­inu svo hann gæti ekki skaðað sig með þeim, var Amir fluttur í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár