Sam­held­inn hópur Gylfi, Kjartan og Garðar láta fara vel um sig í brotnum tungu­sófa sem stendur á tjald­svæð­inu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Reykjavík 104,5: Íslenska flóttafólkið í Laugardalnum

Tjald­bú­arnir í Laug­ar­dal standa saman í bar­átt­unni fyrir mann­sæm­andi lífi. Einn flutti í tjald eftir hjarta­á­fall, annar skildi við kon­una, þriðji valdi hund­inn fram yfir her­bergið og flutti í jepp­ann sinn, fjórði lenti í slysi og missti húsið á nauð­ung­ar­upp­boði, enn önnur vék fyrir fjöl­skyldu úr íbúð og loks eru það þeir sem hríf­ast ein­fald­lega af þessu nýja sam­fé­lagi íslenskra flótta­manna í hjarta höf­uð­borg­ar­innar.

Á tjald­svæð­inu í Laug­ar­dal hefur mynd­ast nokkuð fjöl­mennt sam­fé­lag. Flestir sem dvelja í Laug­ar­dalnum gera það af algjörri neyð, en nokkrir til þess að spara sér aur­inn. Svæðið er heldur hrör­legt að sjá þegar blaða­mann og ljós­mynd­ara Stund­ar­innar ber að garði. Eftir langa kulda­tíð er komin hláka og gler­hálka hefur mynd­ast í kringum hús­bíl­ana. Íbúarnir hafa beðið óþreyju­fullir eftir sandi, enda margir flogið á haus­inn, en nú virð­ist nátt­úran ætla að leysa málið. Íbúar tjald­svæð­is­ins í Laug­ar­dal vilja að svæðið fái póst­núm­erið 104,5, þar sem það liggur mitt á milli hverfa 104 og 105. Þá væri kannski hægt að koma upp póst­kassa.

Sal­ern­is­að­stöð­unni á tjald­svæð­inu var lokað í haust og verða íbúar því að banka upp á hjá far­fugla­heim­il­inu í næstu götu til þess að kom­ast á sal­erni eða í sturtu. „Ef manni verður brátt í brók, til dæmis hérna inni, þá þarf maður að hlaupa alla leið hérna upp …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár