Tröllvaxin auglýsing H&M í gangveginum á Lækjartorgi

“See you at Smára­lind!” stendur á stóru aug­lýs­inga­skilti sem stillt var upp á Lækj­ar­torgi.

Tröllvaxin auglýsing H&M í gangveginum á Lækjartorgi

Risa­vaxið aug­lýs­inga­skilti fyrir H&M sem komið var fyrir á Lækj­ar­torgi í gær hefur vakið athygli og umtal. 

Samkvæmt reglum Reykja­vík­ur­borgar ber að sækja um leyfi til afnota af borg­ar­landi, en til þess telj­ast allar götur, gang­stéttar, stígar, opin svæði, almenn­ings­garðar og torg. Þegar Stundin spurð­ist fyrir um skiltið í gær komu starfs­menn borg­ar­innar af fjöllum og könn­uð­ust ekki við að veitt hefði verið leyfi fyrir aug­lýs­ing­unni sem blasir við í gang­veg­inum á Lækj­ar­torgi í formi stórs inn­kaupa­poka með enskri áletrun: “Grand Opening: See you at Smára­lind! August 26”.

Síðar um dag­inn fékk Stundin þau svör að skiltið hefði verið sett upp í leyf­is­leysi og að það yrði fjar­lægt við fyrsta tæki­færi.

Nokkru eftir að Stundin greindi frá því tók Vísir.is við­tal við Guðmund Vigni Ósk­ars­son, verk­efna­stjóra leyf­is­veit­inga borg­ar­lands, sem full­yrti hins vegar að H&M hefði sótt um til­skilin leyfi fyrir aug­lýs­ing­unni og að hún fengi að standa fram yfir mán­aða­mót. Þetta stang­ast á við upp­lýs­ingar sem Stundin fékk frá æðstu stjórn­sýslu Reykja­vík­ur­borgar. Beðist er vel­virð­ingar á mis­tök­unum. 

Fréttin var upp­færð eftir birt­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár