Samfylkingin mælist stærst en Viðreisn tapar fylgi

Sam­fylk­ingin mælist með tæp­lega 30 pró­senta fylgi í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup og er áfram stærsti flokkur lands­ins. Viðreisn missir tæp tvö pró­sentu­stig frá síð­ustu könnun. Stjórn­ar­flokk­arnir þrír eru saman með 44 pró­senta fylgi en helm­ingur þeirra sem taka afstöðu seg­ist styðja rík­is­stjórn­ina.

Samfylkingin mælist stærst en Viðreisn tapar fylgi

Sam­fylk­ingin mælist með 29,6 pró­senta fylgi í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup og bætir við sig 1,7 pró­sentu­stigum frá því í júlí. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist næst­stærstur með 26,8 pró­sent og bætir við sig 1,4 pró­sentu­stigum. 

Mið­flokk­ur­inn mælist með 15,6 pró­senta fylgi og Viðreisn með 9,7 pró­sent. Viðreisn tapar 1,7 pró­sentu­stigum frá júlí og er það stærsta breyt­ingin á fylgi ein­stakra flokka milli mán­aða.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 5,5 pró­senta fylgi og Flokkur fólks­ins með 4,8 pró­sent. Vinstri græn, sem eiga ekki full­trúa á Alþingi eftir síð­ustu kosn­ingar, mæl­ast með 3,6 pró­sent og Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem aldrei hefur átt þing­full­trúa, með 2,4 pró­sent.

Könnun Gallup 4.–31. ágúst 2026
Þjóðarpúls Gallup fyrir september. Fylgi flokka á landsvísu samkvæmt net– og símakönnun sem Gallup gerði dagana 4. - 31. ágúst 2026. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,4-1,3%. Úrtakið í netkönnun var tilviljunarúrtak úr Viðhorfahópi Gallup, en úrtakið í símakönnun var tilviljunarúrtak úr Þjóðskrá.
Samfylkingin
29,6%
Sjálfstæðisflokkurinn
26,8%
Miðflokkurinn
15,6%
Viðreisn
9,7%
Framsókn
5,5%
Flokkur fólksins
4,8%
Vinstri græn
3,6%
Sósíalistaflokkurinn
2,4%
Heimild: Gallup. Úrtak 13.836, svarhlutfall 40,2%. Strikalínan er 5% þröskuldurinn fyrir jöfnunarsæti.

Flokkur fólksins langt undir kjörfylgi

Rík­is­stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur er mynduð af Sam­fylk­ing­unni, Viðreisn og Flokki fólks­ins. Saman mæl­ast flokk­arnir nú með 44,1 pró­sents fylgi. Það er svipað og í júlí, þegar sam­an­lagt fylgi þeirra var 44,5 pró­sent, en tals­vert minna en sam­an­lagt kjör­fylgi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár