Björn Ólafur Har­alds­son Mynd: Golli

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Björn Ólafur Har­alds­son hafði lokið tveimur árum af hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar hann hneig niður á heim­ili sínu 14. júlí í fyrra. Hann seg­ist aldrei hafa lært sér­stak­lega um sjald­gæfar æða­flækjur í nám­inu. En ein­hvern veg­inn vissi hann á þessu augna­bliki hvað hann væri að upp­lifa.

„Ég hélt fyrst að þetta væri mígreni en fatt­aði að ég hefði aldrei fengið mígreni áður svo það gæti ekki verið,“ segir Björn Ólafur, sem var 21 árs gam­all þegar áfallið reið yfir. „Svo var ég með jafn­vægis­trufl­anir og fatt­aði þá strax hvað þetta var. Ég hafði farið fram til að taka paratabs því fyrst hélt ég að þetta væri bara haus­verkur. En sím­inn minn var inni í svefn­her­bergi svo ég komst ekki til baka að hringja þegar ég kveikti á þessu. Ég datt á leið­inni og reyndi að standa upp en var með minni mátt í annarri hlið­inni og gat það ekki.“

Björn Ólafur hafði …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífið á Grensás

„Þegar þú ert með flókin dæmi vilja kerfin illa tala saman“
ViðtalLífið á Grensás

„Þegar þú ert með flókin dæmi vilja kerfin illa tala saman“

Yfir­læknir og deild­ar­stjóri á Grens­ás­deild segja ungt fólk mæta fjölda áskor­ana eftir útskrift af deild­inni. Dæmi séu um að ungt fólk sé sent á elli­heim­ili eða bíði í lengri tíma eftir þjón­ustu. Heilaskaðar hjá ungu fólki geta reynt á maka, fjöl­skyldur og nær­sam­fé­lagið en gef­andi sé að sjá fólk halda aftur út í lífið eftir vel heppn­aða end­ur­hæf­ingu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár