Ráðgjafi Hafnarfjarðabæjar velti 40 milljónum

Ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Vissa ráð­gjöf átti gott rekstr­arár á síð­asta ári sam­kvæmt árs­reikn­ingi félags­ins. Eigandi þess er fyrr­ver­andi þing­maður, en nokkur styr var um störf hans fyrir Hafn­ar­fjarð­arbæ.

Hafnarfjörður
Hafn­ar­fjörður Mynd: Golli

Ráð­gjafa­fyr­ir­tæki Ágústs Bjarna Garð­ars­sonar, fyrr­ver­andi þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, átti sterkt rekstr­arár á síð­asta ári, þegar það velti 40 millj­ónum króna.

Ágúst Bjarni féll af þingi eftir síð­ustu þing­kosn­ingar en áður var hann sjálfur odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafn­ar­firði. Við honum tók Valdimar Víðisson, sem lét af emb­ætti bæj­ar­stjóra á dög­unum, þrátt fyrir góðan sigur Fram­sókn­ar­flokks­ins í bænum tókst honum ekki að mynda meiri­hluta því Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og aðrir flokkar sök­uðu hann um trún­að­ar­brest í meiri­hluta­við­ræðum.

Sjö milljónir fyrir ráðgjöf

Heim­ildin fjall­aði um það fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar að félag Ágústs Bjarna, Vissa Ráðgjöf, hefði fengið tæpar 7 millj­ónir króna fyrir ráð­gjafa­störf hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ á síð­asta rekstr­ar­ári.

Þá kom fram í svari Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar að þáver­andi bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar og sam­flokks­maður Ágústs, Valdimar Víðisson, hefði falið Ágústi Bjarna að vinna verk­efni fyrir bæinn. Meðal þeirra var upp­bygg­ing á Hraun vestur svæði, Reykja­vík­ur­vegi 60-62, sem bygg­inga­þró­un­ar­fé­lagið OS bygg­ingar ehf., stendur að. …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Torfi H Ágústsson skrifaði
    Torfi H Ágústsson, Sléttuvegur 23 , íb.602 . Reykjavík 103 , ÍTREKAÐ
    -1
  • Torfi H Ágústsson skrifaði
    Blaðið berst mér ekki ! Ég bý á Slettuvegur 23 . íb.602 . ÝTREKAÐ
    Torfi H Ágústsson. (Var fyrir nokkrum árum á Kristnibraut 29)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár