Megas er látinn

Lista­mað­ur­inn og söngvaskáldið Megas er lát­inn.

Megas er látinn
Megas Er lát­inn 81 árs að aldri. Mynd: mbl/Einar Falur

Magnús Þór Jónsson, betur þekktur undir lista­manna­nafni sínu Megas, er lát­inn, 81 árs að aldri. Hann lést á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Grund.

Megas gaf sína fyrstu plötu út árið 1972 og síðan út hina róm­uðu plötu Milli­lend­ingu árið 1975. Eftir hann liggur fjöldi hljóm­platna, sem og bækur.

Einstakt söngvaskáld

Megasi hefur verið lýst sem ein­stöku söngvaskáldi en hann var sonur skáld­kon­unnar Þórunnar Elfu Magn­ús­dóttur og Jóns Þórð­ar­sonar kenn­ara og rit­höf­undar.

Megas byrj­aði snemma að fást við laga­smíðar og texta­gerð, lærði á píanó og samdi meðal ann­ars lagið um Gamla sorrí Grána fyrir ferm­ingu. Á gagn­fræða­skóla­ár­unum samdi hann menú­etta áður en hann hellti sér út í þjóð­lagapæl­ingar, keypti sér nótna­bók með amer­ískri alþýðu­tón­list og lagði sig eftir skand­in­av­ískum þjóð­lögum.

Litríkur ferill

Frá æsku­árum Megasar er einnig til fjöldi teikn­inga af ýmsum toga sem hann hefur haldið til haga. Helstu áhrifa­valdar Megasar á æsku­árum hans voru Halldór Laxness og Elvis Presley.

Um jólin 1968 gaf hann út bók­ina Megas, sem inni­hélt lögin Dauði Snorra Sturlu­sonar, Jón Sig­urðs­son & sjálf­stæð­is­bar­átta Íslend­inga, Með gati, Ófelía, Ragn­heiður bisk­ups­dóttir, Silfur Egils, Um óheppi­lega fund­vísi Ingólfs Arn­ar­sonar, Um skáldið Jónas, Um grimman dauða Jóns Arasonar og Vertu mér sam­ferða inn í blóma­landið, amma.

Nótur og textar

Stuttu síðar kom út annað heftið og það þriðja árið 1973, sem hét Megas kom­inn, en frá­leitt far­inn. Áður en fyrsta hljóm­plata hans kom út í Noregi árið 1972 komu út eftir hann þrjú hefti með textum, nótum og teikn­ingum. Þau hétu ein­fald­lega Megas I (1968), Megas II (1969) og Megas III (1970). Árið 1973 gaf hann heftin þrjú út aftur, end­ur­skoðuð, og bætti fjórða heft­inu við, Megas IV. Margt af því efni sem birt­ist í heft­unum átti síðar eftir að rata inn á plöt­urnar hans.

Megas var á heið­urs­lista­manna­launum og marg­verð­laun­aður list­maður.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Snyllingur sem minnst verður að eilífu.
    1
  • MMG
    Magnús Mörður Guðbjörnsson skrifaði
    Fallinn er frá stórkostlegur listamaður og stórmerkilegur karakter, takk fyrir að vera þú!!!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu