Deilur við nágranna um bílastæði við náttúruperlur: „Ég má hefta aðgang“

Land­eiganda hefur misboðið umgengni við Fosslaug og Reykja­foss. Hann segir nágranna sinn rukka fyrir bílastæði en firra sig ábyrgð á svæðinu. Lög tryggja almenningi för um óræktað land.

Fosslaug
Fosslaug Land­eig­andi seg­ist mega hefta aðgengi almenn­ings að nátt­úruperlum á landi sínu. Mynd: Bromr

Dagur Torfason, bóndi og land­eigandi, segir nágranna sinn hagnast á ferða­mönnum sem heimsækja Fosslaug og Reykja­foss á landi í hans eigu á meðan hann sitji uppi með ábyrgð á svæðinu.

Heimildin greindi frá því í dag að Dagur hefði sett upp skilti þar sem fram kemur að umferð um land hans sé óheimil. Beindi hann tilmælum til fólks í ferða­þjónustu að skipuleggja ekki ferðir þangað.

„Sá tími að við látum það viðgangast að annar aðili rukki fyrir þjónustu fyrir ferðamenn sem koma vegna aðdráttar­afls á okkar landi en firri sig allri ábyrgð á svæðinu og skili engu er liðinn,“ segir Dagur í viðbót við færsluna í Facebook-hópnum Bakland ferða­þjónustunnar þar sem hann tilkynnti um lokunina. Færslan hefur vakið mikla athygli og umræður.

Í samtali við Heimildina segir Dagur ágreining hafa ríkt við nágranna sinn sem rekur bílastæði þar sem fólk leggur til að geta lagt í …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár