Þessir þingmenn töluðu minnst á nýliðnu þingi: Stysta ræðan 38 sekúndur

Áslaug Arna tal­aði styst á ný­liðnu þingi, eða í þrjár mín­út­ur. Lengst tal­aði Jón Pét­ur Ziemsen, þing­mað­ur Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Þessir þingmenn töluðu minnst á nýliðnu þingi: Stysta ræðan 38 sekúndur
Alþingi Mynd: Davíð Þór

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir talaði styst allra þingmanna á nýliðnum þingvetri eða í heilar þrjár mínútur samkvæmt svörum Alþingis um ræðutíma þingmanna. Þann stutta tíma nýtti hún til þess að tilkynna þingheimi, og þjóðinni allri, að hún segði af sér þingmennsku eftir áratugastarf á því sviði. Áslaug Arna var í leyfi frá þingi yfir veturinn og lagði stund á nám í Bandaríkjunum sem skýrir fjarveru hennar frá ræðustólnum.

Af þeim þremur þingmönnum sem töluðu styst á þingi eru tveir þeirra þingmenn Flokks fólksins eða hafa verið í honum. Þannig er Guðmundur Ingi Kristinsson í öðru sæti yfir þá þingmenn sem töluðu styst á liðnum vetri, eða 23 mínútur. Athugið að ræður hans sem mennta- og barnamálaráðherra eru ekki taldar hér með til þess að gæta jafnræðis í samanburði á þingtíma. Séu ráðherraræður teknar með í reikninginn talaði hann 2 klukkustundir og eina mínútu. Það setur hann nokkuð ofar af þingmönnum sem töluðu styst.

Guðmundur Ingi fór í veikindaleyfi í desember síðastliðnum vegna hjartveiki. Hann tók sæti á ný á þingi í mars og tilkynnti í kjölfarið að hann hygðist segja sig úr Flokki fólksins og sitja utan þingflokka.

Í þriðja sætinu er þingmaður Flokks fólksins í Suðvesturkjördæmi, Jónína Björk Óskarsdóttir. Hún talaði í 47 mínútur samanlagt í 24 ræðum. Athugið að hér er aðeins litið til þingmanna en fjölmargir varaþingmenn töluðu mun skemur. Þannig var stysta ræðan á þingvetrinum 38 sekúndur, en hana flutti Gabríel Ingimarsson, varaþingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi.

Sá sem talaði lengst á þingi var Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem talaði í 29 klukkustundir og 55 mínútur. Næst á eftir komu Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, sem talaði í 27 klukkustundir og 35 mínútur og að lokum samflokksmaður hennar, Þorgrímur Sigmundsson, sem talaði í 25 klukkustundir og 33 mínútur.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
1
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Kalla eftir alþjóðlegum aðgerðum gegn „öfgafullu vinstri fólki“
2
ErlentBandaríki Trumps

Kalla eft­ir al­þjóð­leg­um að­gerð­um gegn „öfga­fullu vinstri fólki“

Ut­an­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna seg­ir „hryðju­verka­fólk“ und­ir yf­ir­skini „jafn­rétt­is, rétt­læt­is og frels­is“ vera „ein­staka illsku“. Stephen Miller, hægri hönd for­set­ans, seg­ir vinstri­menn dreifa „krabba­meini“ í sam­fé­lag­inu. „Þau eru öll af­mynd­uð á ein­hvern hátt í út­liti, klæða­burði og hátta­lagi,“ seg­ir hann.
„Ég elska þig á íslensku“ – endurreisnarmaður íslenskunnar
5
Menning

„Ég elska þig á ís­lensku“ – end­ur­reisn­ar­mað­ur ís­lensk­unn­ar

„Fá­ir ef nokkr­ir lista­menn hafi haft jafn mik­il áhrif á ís­lenska tungu í sam­tím­an­um og Bubbi Mort­hens,” seg­ir lærð­ur við­mæl­andi í grein þess­ari af til­efni sjö­tugsaf­mæl­is hans. Ann­ar seg­ir hann vera mik­il­væg­an end­ur­reisn­ar­mann ís­lensk­unn­ar. Þenn­an lista­mann þjóð­arsál­ar­inn­ar sem ýms­ir smætt­uðu þó í upp­hafi sök­um meintr­ar skrif­blindu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
2
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.
Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
3
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
6
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár