Uppsagnir enn í gangi: Skipulagsbreytingar borgarinnar umfangsmiklar

Enn er verið að segja upp starfs­fólki borg­ar­innar á fundum með borg­ar­rit­ara. Tvö svið að minnsta kosti lögð niður og fleiri upp­sagnir á skrif­stofu borg­ar­stjóra.

Uppsagnir enn í gangi:  Skipulagsbreytingar borgarinnar umfangsmiklar
Nýr meiri­hluti Borg­ar­full­trúar sitja nú á fundi borg­ar­ráðs. Mynd: Golli

Upp­sagnir standa enn yfir hjá Mann­réttinda­ráði Reykja­vík­ur­borgar sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar þegar þetta er ritað, en ráðið verður lagt niður að því er RÚV greindi frá. Ákvörð­unin var tekin á fundi borg­ar­ráðs í hádeg­inu en borg­ar­stjórn mun útskýra atburði dags­ins frekar eftir fund borg­ar­ráðs klukkan fjögur í dag.

Umfangs­miklar skipu­lags­breyt­ingar eru á döf­inni innan Ráðhúss Reykja­víkur á fleiri sviðum innan skrif­stofu borg­ar­stjóra. Þannig stendur til að breyta eða leggja niður stefnu­mót­unar- og þró­un­arteymi borg­ar­innar, en verk­efnin þar voru að hluta til undir atvinnu- og borg­ar­þróun sem var lagt niður í þeirri mynd fyrir ári.

Á vef borg­ar­innar segir að stefnu­mót­unar- og þró­un­arteymi styðji við fram­gang áherslu­mála borg­ar­stjóra og taki þátt í verk­efnum sem kalla á þróun, stefnu­mótun eða sam­hæf­ingu ásamt umsjón alþjóð­legra rann­sókna- og nýsköp­un­ar­verk­efna. Teymið leiðir sam­hæf­ingu stefnu­mót­unar innan Reykja­vík­ur­borgar og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár