Umfangsmiklar fjárfestingar Guðbjargar Matthíasdóttur, útgerðarkonu í Vestmannaeyjum, hafa byggst á nærri fimmtán milljarða króna arðgreiðslum út úr útgerð hennar, Ísfélaginu, á síðustu áratugum. Guðbjörg er einn umsvifamesti einkafjárfestir landsins og á, í gegnum fjárfestingafélög, allt frá heildsölum til hjúkrunarþjónustu eldri borgara.
Guðbjörg tók við stjórn fjölskyldufyrirtækisins eftir fráfall Sigurðar Einarssonar, eiginmanns síns og forstjóra Ísfélagsins, og hefur veldið stækkað mikið síðan. Með fjármunum úr útgerðinni hefur Guðbjörg gerst umsvifamikill fjárfestir í heildsölufyrirtækjum eins og Íslensk-Ameríska, þekktum framleiðslufyrirtækjum eins og Myllunni og Ora, og í fjölmiðlum eins og Sýn, sem og einkareknum heilbrigðisfyrirtækjum.
Ísfélagið er meðal þeirra fyrirtækja sem fjallað er um í nýlegri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, sem falið var af atvinnuvegaráðuneytinu að greina raunverulegt eignarhald og fjárfestingar stórra íslenskra útgerðarfélaga. Skýrslan svarar þessum spurningum þó aðeins að litlum hluta og er Guðbjörg dæmi um það. Hvorki nafn hennar né fjárfestingar koma fram í skýrslunni, þrátt fyrir að hún og …



























Athugasemdir