Guðmundur Ingi Þóroddsson leiðir framboðslista Flokks fólksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í maí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Einar Sveinbjörn Guðmundsson varaborgarfulltrúi skipar annað sætið og Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir grunnskólakennari er í þriðja sæti. Fjórða sætið skipar Sigurveig Jóhannsdóttir ráðgjafi ungmenna með fjölþættan vanda, Rúnar Sigurjónsson vélvirki og varaborgarfulltrúi skipar fimmta sætið og Lilja S. Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur er í sjötta sæti.
Guðmundur Ingi er formaður Rósarinnar sem er aðildarfélag Samfylkingarinnar. Rósin átti í viðræðum um framboð með öðrum en Samfylkingu áður en Guðmundur Ingi ákvað að yfirgefa flokkinn eftir að hann komst ekki á lista uppstillingarnefndar flokksins. Helga Þórðardóttir er fráfarandi oddviti Flokks fólksins.
Í tilkynningu segir að Flokkur fólksins haldi bjartsýnn út í kosningabaráttuna í Reykjavík.
„Áherslur flokksins í núverandi borgarmeirihluta sem stofnaður var fyrir rúmu ári hafa margar skilað sér. Þar ber hæst …

















































Athugasemdir