Þegar hægrið vildi skoða ESB, evru og þjóðaratkvæðagreiðslu

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son vildu skoða ESB-um­sókn og upp­töku evru eft­ir banka­hrun þar til vinstri­stjórn var mynd­uð. Þeir lof­uðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu eft­ir að þeir komust í rík­is­stjórn en ann­ar leið­ir nú bar­áttu stjórn­ar­and­stöð­unn­ar gegn henni og hinn stýr­ir Sam­tök­um at­vinnu­lífs­ins.

Þegar hægrið vildi skoða ESB, evru og þjóðaratkvæðagreiðslu
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson Formenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks kynntu nýja ríkisstjórn við Laugarvatn 2013 og lofuðu þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB. Mynd: Pressphotoz

„Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, vilja að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið og að ákvörðun um inngöngu verði borin undir þjóðaratkvæði.“ Svona hófst forsíðufrétt Fréttablaðsins 13. desember 2008.

Þarna hafði Ísland nýlega gengið í gegnum bankahrun, ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var enn við völd, löskuð þó, og þeir Bjarni og Illugi ungir og upprennandi í þingflokki þess fyrrnefnda. Mikil óvissa var uppi um framtíð íslensks efnahagslífs og íslensku krónunnar, en gengi hennar hafði hríðfallið mánuðina á undan sem þrátt fyrir verðbólgubál gaf vonir um sterkari stöðu útflutningsgreina.

„En sé horft til lengri tíma er hætt við að krónan verði okkur fjötur um fót,“ skrifuðu Bjarni og Illugi. „Sá sveigjanleiki sem krónan veitir okkur til að kljást við afleiðingar mistaka í hagstjórn eða til að bregðast við ytri áföllum á sér því miður þá skuggahlið að vera sveifluvaldandi og geta ýtt undir óstöðugleika í hagkerfinu. Óstöðugur gjaldmiðill dregur úr …

Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er þetta sem er pólitík, eitt í dag og annað á morgun. Svo eru tíkur þannig að þær ellta þann sem gefur þeim að éta.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

„Ef við viljum gera róttækar breytingar á hagkerfinu erum við betur sett utan ESB“
ViðtalHorft til Evrópu

„Ef við vilj­um gera rót­tæk­ar breyt­ing­ar á hag­kerf­inu er­um við bet­ur sett ut­an ESB“

Full­veldi Ís­lands og sjálf­stæði í pen­inga- og rík­is­fjár­mál­um þarf að vera til stað­ar ef vinstri stjórn kemst til valda og vill gera rót­tæk­ar breyt­ing­ar, seg­ir Jök­ull Sól­berg Auð­uns­son, stjórn­ar­mað­ur í Til vinstri við ESB. Hann vill horfa til BRICS-ríkj­anna og var­ar við mögu­leik­an­um á her­skyldu inn­an ESB.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár