Mannréttindasamtökin Human Rights Watch (Mannréttindavaktin) sökuðu Ísrael í dag um að hafa „ólöglega“ beitt hvítum fosfór yfir íbúðahverfi í bæ í suðurhluta Líbanon í síðustu viku.
„Ísraelsher beitti ólöglega stórskotaliðsskotum með hvítum fosfór yfir heimili þann 3. mars 2026 í bænum Yohmor í suðurhluta Líbanon,“ sögðu mannréttindasamtökin, sem hafa höfuðstöðvar í New York, í skýrslu.
HRW bætti við að samtökin hefðu „staðfest og staðsett sjö myndir sem sýna hvítfosfórsskot springa í lofti yfir íbúðahverfi bæjarins og almannavarnastarfsmenn bregðast við eldum á að minnsta kosti tveimur heimilum og í einum bíl á því svæði“.
Í svari sínu sagði Ísraelsher að hann „viti ekki til og geti ekki staðfest notkun skotfæra sem innihalda hvítan fosfór í Líbanon eins og haldið er fram“.
Herinn sagði að stefna sín væri að nota ekki skotfæri sem innihalda hvítan fosfór „á þéttbýlum svæðum, með vissum undantekningum“.
Hvítur fosfór, efni sem kviknar í við snertingu við súrefni, er hægt að nota til að búa til reykský og til að lýsa upp vígvelli.
En skotfærin er einnig hægt að nota sem íkveikjuvopn og geta valdið eldum, hræðilegum brunasárum, öndunarfæraskaða, líffærabilun og dauða.
Ísrael – sem hélt áfram árásum á Hezbollah þrátt fyrir vopnahlé árið 2024 – gerði margar árásahrinur víðs vegar um Líbanon frá og með síðustu viku og sendi landherlið inn á landamærasvæði eftir að samtökin, sem studd eru af Íran, réðust á landið.
Ísraelsher hefur síðan ítrekað skorað á fólk sem býr sunnan við Litani-ána, um 30 kílómetra norður af ísraelsku landamærunum, að fara burt.
Að minnsta kosti 486 manns hafa fallið í árásum Ísraels, að sögn líbanskra yfirvalda í dag, sem hafa skráð meira en hálfa milljón manna á flótta. Þá hafa 1.313 manns særst, samkvæmt sömu heimildum sem ekki hafa verið staðfestar sjálfstætt af óháðum, alþjóðlegum fréttastofum.
„Ólögleg notkun Ísraelshers á hvítum fosfór yfir íbúðabyggð er mikið áhyggjuefni og mun hafa skelfilegar afleiðingar fyrir almenna borgara,“ er haft eftir Ramzi Kaiss, rannsakanda HRW í Líbanon, í skýrslunni.
„Ísrael ætti tafarlaust að hætta þessari iðju og ríki sem útvega Ísrael vopn, þar á meðal skot með hvítum fosfór, ættu þegar í stað að stöðva hernaðaraðstoð og vopnasölu og þrýsta á Ísrael að hætta að skjóta slíkum skotum á íbúðasvæði,“ bætti hann við.
Líbönsk yfirvöld og HRW hafa undanfarin ár sakað Ísrael um að nota umdeild hvítfosfórsskot í árásum sem yfirvöld segja að hafi skaðað almenna borgara og umhverfið.


Ríkisfréttastofa Líbanons greindi frá því í gær að ísraelskar hersveitir hefðu gert árásir á bæina Khiam og Tal Nahas, nálægt landamærunum að Ísrael, „með stórskotaliðs- og fosfórskotum“.
Í síðasta mánuði sakaði Líbanon Ísrael um að úða illgresiseyðinum glýfosati, eða Roundup, Líbanonmegin við sameiginleg landamæri þeirra, og Joseph Aoun forseti fordæmdi það sem „glæp gegn umhverfinu“.
Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf hins vegar út forsetatilskipun á dögunum sem verndar birgðir Bandaríkjahers af hvítum fosfór, ásamt eitrinu Roundup sem veldur krabbameini.
































Athugasemdir