Hegningar- og refsilagabrotum einstaklinga með erlent ríkisfang hefur fækkað um 16 prósent á síðustu fimm árum á sama tíma og innflytjendum hefur fjölgað um 38 prósent. Þetta má lesa úr svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins.
Dómsmálaráðuneytið tók saman fjölda ákærðra með erlent ríkisfang og má sjá augljósa fækkun hegningar- og refsilagalagabrota sé litið til fimm ára. Fíkniefnabrotum fjölgar hins vegar.
Afbrotafræðingur og dósent hjá Háskóla Íslands, Margrét Valdimarsdóttir, segir tölfræði dómsmálaráðuneytisins ekki nægilega ítarlega til þess að það sé hægt að draga víðtækar ályktanir út frá henni og varar raunar við slíku, en þar er aðeins tekinn saman fjöldi ákærðra með erlent ríkisfang en ekki hvort þeir hafi verið dæmdir fyrir brot sín. Þá geta verið sömu einstaklingar á bak við fleiri en eitt afbrot.
Hegningarlagabrotum fækkar
„Hegningarlagabrotum hefur almennt fækkað hér á landi,“ segir Margrét. Afbrotatölfræði yfir einstaklinga með erlent ríkisfang sýna að það eigi …

















































Athugasemdir