Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, settur rektor Háskólans á Bifröst, þáði samkvæmt gögnum sem Heimildin hefur undir höndum 3,4 milljónir í verktakagreiðslur frá háskólanum í gegnum eignarhaldsfélag sitt Lausnastein ehf. fyrir kennslu árið 2023 þegar hún var deildarforseti félagsvísindadeildar.
Ólína segir við Heimildina að greiðslurnar hafi hún fengið vegna kennslu veturinn 2022-23 sem hún hafði skuldbundið sig í áður en hún varð fastráðin við skólann. Hún segir enn fremur að einstaklingar hafi verið gerðir tortryggilegir vegna viðskipta sinna við háskólann, þrátt fyrir að háskólinn sjálfur hafi komið fyrirkomulaginu á.
Sinnti kennslu og þáði verktakagreiðslur
„Þetta var verklag sem var viðhaft við Háskólann á Bifröst þangað til síðastliðið haust. Allir stundakennarar við skólann voru verktakar og stór hluti þeirra tók greiðslur í gegnum fyrirtæki,“ segir Ólína Kjerúlf og bætir við að greiðslurnar hafi miðast við gjaldskrá skólans á hverjum tíma fyrir sig.
Hún skýrir að hún hafi byrjað við Háskólann á Bifröst sem …















































Athugasemdir