Hvernig líður fólki sem gegnir samtímis tveimur mismunandi hlutverkum sem eru illa samrýmanleg? Hvernig getur sama rödd sagt okkur að verið sé að vinna að vernd íslenskrar náttúru, líffræðilegrar fjölbreytni og víðerna ef hún er samtímis að vinna að orkuöflun sem leggur hina stefnuna í rúst?
Kannski er þetta einmitt birtingarmynd á stöðu vestrænna landa. Að þjóna kröfu hagkerfis um endalausan vöxt en reyna um leið að vernda náttúru og loftslag. Að hafa hagnað, arð og gróða sem meginmarkmið en vilja meðfram reyna að uppfylla heimsmarkmiðin, Parísarsamkomulagið og samning um líffræðilega fjölbreytni. Þetta gengur illa upp. Ef við skoðum hagkerfið er athyglisvert að það er byggt að mörgu leyti á gildum sem eru andstæðar sjálfbærri þróun. Núverandi hagkerfi er háð hagvexti og neysluhyggju og markmiðum um hagnað og arð til eigenda. Með því virðir það ekki þolmörk náttúrunnar sem þekkt er. Við höfum þegar farið yfir þolmörk sjö af …















































Athugasemdir