Andrew Mountbatten-Windsor: Meira að segja nöfn hans eru tilbúningur

Sú var tíð­in að hann nefnd­ist ein­ung­is Andrés prins. Núna heit­ir hann Andrew Mount­batten-Windsor og á í vök að verj­ast í líf­inu, enda greini­lega ekki mjög fínn papp­ír. Meira að segja ætt­ar­nöfn­in hans eru hálf­gerð blekk­ing.

Andrew Mountbatten-Windsor: Meira að segja nöfn hans eru tilbúningur

Það hefur sífellt hallað undan fæti hjá manninum sem kallast nú Andrew Mountbatten-Windsor. Stóra bróður hans fannst hann ekki eiga skilið að bera tignarheitið hertoginn af York og þaðan af síður prins. Þá var tilkynnt að hann myndi eftirleiðis kallaður þessum eftirnöfnum tveim með bandstriki, Mountbatten-Windsor.

En það er spurning hvort þessi tvö samtengdu ættarnöfn séu ekki, þegar að er gáð, alveg jafn mikil blekking og flest annað sem manninum viðvíkur.

Skoðum fyrst nafnið Windsor.

Árið 1714 lést Anna Bretadrottning barnlaus. Að svo færi hafði lengi legið fyrir og Bretar höfðu haft mörg ár til að finna arftaka Önnu þegar þar að kæmi. Árið 1701 hafði Soffía nokkur, sjötug ekkja kjörfurstans í ríkinu Hanover í Þýskalandi loks verið útnefnd ríkisarfi.

Hún hafði alið allan sinn aldur í Þýskalandi og talaði enga ensku en hafði það sér til ágætis að vera dótturdóttur Jakobs konungs 1. af Stuart-ættinni sem lést 1625. …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Skemmtileg lesning um nafnaraunir "eðalborinna". :)
    0
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Þetta prinsa- og prinsipissudót er alveg stórskemmtilega óáhugavert og ódrepandi áhugi sauðsvarts almennings á þessu pakki er ótrúlega merkilegt rannsóknarefni.
    1
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Ef hægt er að draga einhvern lærdóm úr þessu þá er það sá að evrópskur aðall var og er - evrópskur. Á meðan aðhýlltist almúginn þjóðernisstefnu og skemmti sér með því að drepa hver annan í tilgangslausum stríðum í nafni sjálfstæðis þjóðar sinnar.
    0
  • Guðný Bjarnadóttir skrifaði
    Viktoría og Albert voru tvímenningi ( systkinabörn) ekki þremenningar
    1
  • Helgi Hauksson skrifaði
    Flott nafn Mountbatten, flott þýðing á Battenberg og flott lending í erfiðri stöðu þýskra nafna í stríði við Þjóðverja.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár