Upphaf gríska geitasöngsins

Fyrri hluti 5. aldar FT var ótrú­legur tími í Aþenu þegar segja má að örfáir menn hafi bein­línis fundið upp það leik­hús sem enn er í hávegum haft, til dæmis í jóla­sýn­ingu Þjóð­leik­húss­ins núna.

Upphaf gríska geitasöngsins
Oresteia Þjóð­leik­húsið frum­sýnir Oresteiu um jólin í nýrri þýð­ingu Krist­ínar Eiríks­dóttur. Elín Hans­dóttir leik­tjalda­smiður tók þessa mynd á æfingu af Ebbu Katrínu Finns­dóttur og Atla Rafni Sig­urð­ar­syni. Aðrir leik­arar í sýn­ing­unni eru Nína Dögg Fil­ipp­us­dóttir, Hilmir Snær og Ást­hildur Úa Sig­urð­ar­dóttir. Leik­stjóri er Benedict Andrews. Mynd: Elín Hansdóttir

Enginn veit nákvæm­lega hvenær eða hvernig það gerð­ist. Það var samt ein­hvern veg­inn svona:

Eskýlos frá Elevis sat flötum beinum á gólf­inu í glæsi­húsi sínu í Kera­meikos-hverf­inu undir Akropol­is­hæð í Aþenu. Hann mund­aði stíl­vopn sitt yfir papýrusrúllu þar sem hann var byrj­aður að festa á blað nýjan harm­leik. Hann var kom­inn með nafnið á harm­leiknum. Myrmidónes átti hann að heita, eða Maur­arnir, og fjalla um sam­skipti ást­vin­anna Akki­lesar og Patroklosar á ofan­verðum dögum Tróju­stríðs­ins.

Grikkir höfðu árum saman verið að reyna að vinna Tróju­borg en nú hafði komið stórt babb í bát­inn, því helstu hetju þeirra, honum Akkilesi, hafði sinn­ast við Aga­mem­non Grikkja­kóng og dregið sig út úr stríð­inu. Ástæðan var sú að hetj­unni fannst kóngur hafa sýnt sér per­sónu­lega lít­ils­virð­ingu.

Ekki aðeins fræðileg spurning

Patroklos unni Akkiles en hvatti hann til að láta af fýlu sinni og ganga aftur í stríðið. Þrátt fyrir stór­lyndi sitt …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana skrifaði
    Kæri Illugi Jøkulsson,
    Mér finnst þetta svo mikil snilld
    og mikill leikur að lesa.
    Íslenskan dansar í þinni meðferð
    og ég bæði fræðist og kætist
    fyrir bragðið.
    Svo fyrir utan það, hvað þetta er
    faglega stutt með sögulegum
    HEIMILDUM.
    Með vinsemd og virðingu frá K 843
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár