Grafarvogsfundur dró fram vantraust til borgarstjórnar

Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir nauð­syn­legt að fá skýr svör um upp­bygg­inga­á­form í Graf­ar­vogi. Einar Þor­steins­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, kallar hús­næð­is­á­ætlun borg­ar­innar „full­kom­lega ómark­tækt plagg“.

Hildur Björnsdóttir
Hildur Björns­dóttir Oddviti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn. Mynd: Bára Huld Beck

„Við þurfum að fá svör frá borg­inni um það hvor talan sé rétt,“ segir Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um loðin svör borg­ar­stjóra um upp­bygg­ingu íbúða í Graf­ar­vogi.

Á fundi borg­ar­stjóra með íbúum Graf­ar­vogs síð­ast­lið­inn mánu­dag var Heiða Björg Hilm­ars­dóttir borg­ar­stjóri Reykja­víkur spurð af íbúum um mis­ræmi í því sem íbúum hefur verið kynnt og því sem fram kemur í áætl­unum borg­ar­innar. 

Í hús­næð­is­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar kemur fram að til standi að reisa 523 íbúðir í hverf­inu á næstu tíu árum, en aðeins örfáum mán­uðum áður en áætl­unin var sam­þykkt var íbúum til­kynnt að draga ætti úr íbúða­upp­bygg­ingu og var talan 340 íbúðir nefnd í því sam­hengi.

Í stað þess að svara spurn­ingu íbú­ans full­yrti borg­ar­stjóri að þessar tölur væru rangar hjá íbúum og gaf engin önnur svör.

Djúpstæðari vandi

Í hús­næð­is­á­ætlun borg­ar­innar kemur sann­ar­lega fram að borgin stefni á að reisa 523 íbúðir í hverf­inu …

Kjósa
-2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár