Í dag er föstudagurinn þrettándi. Þetta er þó ekki sá eini á þessu ári. Árið 2026 lendir þrettándi dagur mánaðar raunar þrisvar sinnum á föstudegi, í febrúar, mars og nóvember. Aldrei verða þeir fleiri á einu ári og síðast voru þeir þrír árið 2015. Samkvæmt þjóðtrúnni er þetta auðvitað hinn mesti óhappadagur og þekkist víða um heim sem slíkur.
Talan þrettán er víða, þó ekki alls staðar, talin sérstök ólukkutala. Mörg okkar kerfi byggja á tölunni tólf, til dæmis eru tólf mánuðir í árinu og tvisvar sinnum tólf klukkutímar í sólarhringnum. Þá finnst sú tala víða í þjóðsögum og trúarbrögðum. Lærisveinar Jesú voru til dæmis tólf talsins (í síðustu kvöldmáltíðinni voru því þrettán samankomnir og það endaði ekki betur en svo að einn sveik Jesú sem var svo krossfestur á föstudegi). Tólf er röð og regla, rétt utan við það stendur þrettán og þar er voðinn vís. Hjátrúin er eðli …












































Athugasemdir