„Hann ætti að axla ábyrgð í staðinn fyrir að saka barnið okkar um ósannindi“

„Að halda því fram að tíu ára barn sé að ljúga upp á hann er stór­kost­lega skrítið,“ segir faðir tíu ára drengs um yfir­lýs­ingu Helga Bjarts Þor­varð­ar­sonar sem er ákærður fyrir kyn­ferð­is­brot gegn drengnum. For­eldr­arnir segja yfir­lýs­ing­una „ótrú­lega“ og vilja gæslu­varð­hald yfir Helga Bjarti.

„Hann ætti að axla ábyrgð í staðinn fyrir að saka barnið okkar um ósannindi“
„Ótrúleg yfir­lýs­ing“ Hjónin vilja að Helgi Bjartur axli ábyrgð. Mynd: Golli

„Ég veit ekki hvort þetta er sið­ferð­is­brestur eða skeyt­ing­ar­leysi en hann er að segja að barnið okkar hafi sagt ósatt,“ segir faðir tíu ára drengs um yfir­lýs­ingu Helga Bjarts Þor­varð­ar­sonar sem er ákærður fyrir að hafa brotið kyn­ferð­is­lega á drengnum í sept­em­ber á síð­asta ári.

Móðir og faðir drengs­ins ræddu við Heim­ild­ina í kjöl­far yfir­lýs­ingar Helga Bjarts sem birt­ist fyrr í dag en þar gengst hann ekki við því að hafa brotið á syni þeirra og seg­ist hafa verið í „blakkáti“.

„Þó að ég hafi verið í þessu ástandi þá hef ég það ein­fald­lega ekki í mér að vera fær um að gera það sem ég er sak­aður um og er sak­laus af þeirri ákæru,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Yfirlýsing sýni innsæisleysi

Faðirinn segir að honum hafi orðið óglatt við að lesa yfir­lýs­ing­una og nefnir að þar segi Helgi Bjartur ann­ars vegar að hann muni ekki eftir …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár