Endurvinnsla veigamikil í framtíðinni

Verk­efn­ið Mis­brigði er unn­ið af nem­end­um í fata­hönn­un á 2. ári við Lista­há­skóla Ís­lands í sam­starfi við Fata­söfn­un Rauða kross Ís­lands. Rann­sak­að­ar eru leið­ir til að skapa nýj­an fatn­að úr ósölu­hæf­um flík­um með þekk­ingu og að­ferða­fræði hönn­un­ar. Sjón­um er beint að tísku á Ís­landi í tengsl­um við sjálf­bærni.

Þetta var í ellefta sinn sem við unnum verkefnið,“ segir Katrín María Káradóttir, prófessor í fatahönnun, en hún hefur starfað við Listaháskólann síðan 2005 og átt stóran hlut í að móta háskólanám í fatahönnun hér á landi.

„Yfirleitt höfum við unnið innsetningar eftir tískusýninguna og alltaf gert myndatöku. Fyrstu árin skipulögðum við myndatökuna,“ bætir hún við en undanfarin ár hafa nemendur skipulagt hana með leiðsögn Önnu Clausen og Berglind Jóna Hlynsdóttir myndlistarkona leiðbeint þeim með innsetningarnar.

Að sögn Katrínar er ljóst að endurvinnsla mun spila veigamikið hlutverk í framtíðinni. „Það að draga þurfi úr framleiðslu og breyta aðferðum þarf hins vegar ekki að koma niður á sköpunargleðinni. Þvert á móti munum við hafa enn meiri þörf fyrir sköpun og þekkingu. Óhófleg neyslumenning og stuttur líftími textíls gerir tísku- og textíliðnaðinn mjög óumhverfisvænan. Þessu má breyta meðal annars með því að glæða gömul klæði og efni nýju lífi og vinna …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár