Endurvinnsla veigamikil í framtíðinni

Verk­efnið Mis­brigði er unnið af nem­endum í fata­hönnun á 2. ári við Lista­há­skóla Íslands í sam­starfi við Fata­söfnun Rauða kross Íslands. Rann­sak­aðar eru leiðir til að skapa nýjan fatnað úr ósölu­hæfum flíkum með þekk­ingu og aðferða­fræði hönn­unar. Sjónum er beint að tísku á Íslandi í tengslum við sjálf­bærni.

„Þetta var í ell­efta sinn sem við unnum verk­efnið,“ segir Katrín María Kára­dóttir, pró­fessor í fata­hönnun, en hún hefur starfað við Lista­há­skól­ann síðan 2005 og átt stóran hlut í að móta háskóla­nám í fata­hönnun hér á landi.

„Yfir­leitt höfum við unnið inn­setn­ingar eftir tísku­sýn­ing­una og alltaf gert mynda­töku. Fyrstu árin skipu­lögðum við mynda­tök­una,“ bætir hún við en und­an­farin ár hafa nem­endur skipu­lagt hana með leið­sögn Önnu Clausen og Berglind Jóna Hlyns­dóttir mynd­list­ar­kona leið­beint þeim með inn­setn­ing­arnar.

Að sögn Katrínar er ljóst að end­ur­vinnsla mun spila veiga­mikið hlut­verk í fram­tíð­inni. „Það að draga þurfi úr fram­leiðslu og breyta aðferðum þarf hins vegar ekki að koma niður á sköp­un­ar­gleð­inni. Þvert á móti munum við hafa enn meiri þörf fyrir sköpun og þekk­ingu. Óhófleg neyslu­menn­ing og stuttur líf­tími textíls gerir tísku- og textíl­iðn­að­inn mjög óum­hverf­is­vænan. Þessu má breyta meðal ann­ars með því að glæða gömul klæði og efni nýju lífi …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár