Takmarka fjölda nemenda utan EES: „Við vitum ekki hvernig pólitíska landslagið verður“

Marg­ar náms­leið­ir við Há­skóla Ís­lands munu tak­marka fjölda nem­enda ut­an EES-svæð­is­ins frek­ar. Óvissa um fjár­fram­lög með þeim ger­ir áætlana­gerð erf­iða. Að­stoð­ar­rekt­ur seg­ir skól­ann vilja sinna nú­ver­andi inn­flytj­end­um bet­ur, með­al ann­ars með ís­lensku­námi.

Takmarka fjölda nemenda utan EES: „Við vitum ekki hvernig pólitíska landslagið verður“
Ragna Benedikta Garðarsdóttir Aðstoðarrektor Háskóla Íslands segir óvissu um fjárframlög með nemendum utan EES gera áætlanagerð erfiða. Mynd: Davíð Þór

Háskóli Íslands hefur ákveðið að takmarka frekar fjölda nemenda utan Evrópska efnahagssvæðisins á næsta skólaári. Þetta var ákveðið á fundi háskólaráðs 4. desember.

Á sumum námsleiðum eru takmarkanir á nemendum utan EES nýtilkomnar en á öðrum voru þær fyrir og eru nú þrengdar. Á enn öðrum standa þær stað og í hjúkrunarfræði voru þær rýmkaðar.

Ragna Benedikta Garðarsdóttir aðstoðarrektor segir ákvarðanir um fjöldatakmarkanir á námsleiðum alltaf teknar í desember. „Á félagsvísindasviði og hugvísindasviði er verið að takmarka fjöldann utan EES til þess að geta fókuserað meira á innflytjendur sem eru á landinu núna,“ segir hún. „Aðrar námsleiðir eru að takmarka heildarfjölda nemenda alveg sama hvaða ríkisfang þeir eru með.“

Hún segir fjölgun nemenda á undanförnum árum ekki vera sjálfbæra miðað við starfsmannafjölda skólans. „Það hefur verið það mikill aukafjöldi í vissar alþjóðlegar námsleiðir en við erum með takmarkaðan kennarafjölda,“ segir hún. „Sumar námsleiðir eru til þriggja ára og við …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár