„Það er ljós í myrkrinu, þó það sé allt dimmt úti“

Elfa Dögg S. Leifs­dóttir, teym­is­stjóri hjá Rauða kross­inum, og Gunn­hildur Ólafs­dóttir, fag­stjóri Píeta-sam­tak­anna, segja sím­töl í hjálp­ar­síma orðin alvar­legri. Í kringum jólin leitar fólk ráða um sam­skipti, missi, sorg og ein­mana­leika. Báðar segja fyrsta skref fyrir fólk að opna sig um van­líðan og minna á að bjargir eru til staðar.

„Það er ljós í myrkrinu, þó það sé allt dimmt úti“
Sam­veru­stundir „Það er aukin krafa um sam­veru og svo er þetta áminn­ing fyrir þá sem eru einir og myndu gjarnan vilja hafa sterkara net í kringum sig,“ segir Elfa Dögg. Mynd: Shutterstock

„Það sem við finnum mest fyrir á þessum árs­tíma er að fólk er að velta fyrir sér sam­skiptum, það er missir og sorg,“ útskýrir Elfa Dögg S. Leifs­dóttir, sál­fræð­ingur og teym­is­stjóri heil­brigð­is­verk­efna hjá Rauða kross­inum. Önnur algeng sím­töl á þessum árs­tíma snúa að ein­mana­leika og kvíða.

Spurð hvort það sé við­búið að slík mál komi upp á þessum tíma árs svarar Elfa því ját­andi. „Í þessum flokkum þá sjáum við vöxt,“ segir hún.

Elfa Dögg S. Leifs­dóttir segir fólk meðal ann­ars leita ráða varð­andi sam­skipti, sorg og missi í kringum jólin.

Jóla­há­tíðin snýst að mörgu leyti um sam­veru­stundir með ást­vinum sem geta reynst ein­stak­lingum krefj­andi. „Það er aukin krafa um sam­veru og svo er þetta áminn­ing fyrir þá sem eru einir og myndu gjarnan vilja hafa sterkara net í kringum sig,“ útskýrir Elfa. „Þó að sumir kjósi …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár