Kjósendur Sjálfstæðisflokksins ánægðari með Sigmund en sinn eigin formann

Sextíu pró­sent svar­enda í könnun Maskínu eru ánægðir með störf Kristrúnar Frosta­dóttur, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar og for­sæt­is­ráð­herra. Fæstir sem kusu Sjálf­stæð­is­flokk­inn eru ánægðir með störf for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Kjósendur Sjálfstæðisflokksins ánægðari með Sigmund en sinn eigin formann
Guðrún Haf­steins­dóttir Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur ekki náð að heilla sína kjós­endur á kjör­tíma­bil­inu. Mynd: Golli

Sextíu pró­sent þjóð­ar­innar telja Kristrúnu Frosta­dóttur, for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar og for­sæt­is­ráð­herra, hafa staðið sig vel á sínu fyrsta ári í störfum sínum á Alþingi, að því er fram kemur í könnun Maskínu. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er sá for­maður sem sem fæstir kjós­endur flokks­ins eru ánægðir með. Fleiri kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru ánægðir með störf for­manns Mið­flokks­ins en Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

Formenn rík­is­stjórn­ar­flokk­ana sitja í þremur efstu sæt­unum. 46 pró­sent svar­enda könn­un­ar­innar telja Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, for­manns Við­reisnar, hafa staðið sig vel það sem af er kjör­tíma­bili. 24 pró­sent eru ánægðir með störf Ingu Sæland, for­manns Flokks Fólksins. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er hæstur for­manna flokka sem eru í stjórn­ar­and­stöðu og mælist með 21 pró­sent. Nýr for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Guðrún Haf­steins, er í næst síð­asta sæti með 14 pró­sent. 

Mikill með­byrMikil ánægja er með stöf Kristrúnar Frosta­dóttur, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar á meðan Sig­mundur nartar í hæl­ana á Ingu Sæland.
…
Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár