„Ég gæti ekki einu sinni séð einföld form“

Gauti Páll Jónsson er með hug­sýnastol og getur því ekki séð hluti mynd­rænt fyrir sér. „Þangað til nýlega vissi ég ekki að þetta væri eitt­hvað sem fólk gæti gert,“ segir hann. Sál­fræð­ingur sem stundar rann­sóknir á þessu sviði telur að margir viti ekki að þeir séu með hug­sýnastol.

„Ég gæti ekki einu sinni séð einföld form“
Les mikið Það kom Gauta á óvart að kom­ast að því að þegar flest fólk læsi gæti það búið til ein­hvers konar atburða­rás í hug­anum. Mynd: Víkingur

Ímyndaðu þér epli. Reyndu að sjá það fyrir þér í hug­anum. Hvernig lítur það út? Hvernig er það á lit­inn og í lag­inu? Sérðu glampa á það? Er það kannski svart­hvítt? Mótar aðeins fyrir útlínum þess?

Það hvernig fólk sér hluti mynd­rænt fyrir sér í hug­anum er bæði ein­stak­lings­bundið og mis­mun­andi. Sumir hafa mjög sterkt ímynd­un­ar­afl og eru færir um að sjá flókna og marg­brotna hluti fyrir sér, en aðrir síður.

Síðan eru enn aðrir sem sjá alls ekk­ert þegar þeir eru beðnir um að sjá eitt­hvað fyrir sér. Þetta fyr­ir­bæri, skortur á hæfi­leik­anum að geta séð hluti fyrir sér í hug­anum, er kallað hug­sýnastol (e. aphantasia) og er talið að upp­lifun þriggja til fjög­urra pró­senta fólks ein­kenn­ist af því. 

Fannst tilhugsunin fáránleg

Í þau skipti sem sagn­fræð­ing­ur­inn Gauti Páll Jónsson var í áranna rás beð­inn um að „sjá hluti fyrir sér“ átt­aði hann sig ekki á því að …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár