Týndu strákarnir – sem fundu leiðina heim

Á átján ára afmæl­is­dag­inn vakn­aði Fannar Freyr Har­alds­son á neyð­ar­vistun og fékk lang­þráð frelsi eftir að hafa þvælst í gegnum með­ferð­ar­kerfi rík­is­ins. Hann, Gabríel Máni Jónsson og Arnar Smári Lárusson lýsa reynslu sinni af kerf­inu sem átti að grípa þá sem börn og ung­lingar. Tveir þeirra byrj­uðu að sprauta sig í með­ferð, samt sam­mæl­ast þeir um að þessi inn­grip séu lík­leg­asta ástæðan fyrir því að þeir lifðu af. Ekkert lang­tíma­úr­ræði er fyrir stráka sem stendur.

Týndu strákarnir – sem fundu leiðina heim

„Mér þykir rosa­lega sárt að kveðja ykkur á þessum tíma. Ég elska ykkur öll rosa­lega mikið og er rosa­lega stoltur af ykkur öllum. Verið sterk­ari en ég og gerið mig stoltan.“

Með þessum orðum hugð­ist Arnar Smári Lárusson kveðja þennan heim. Frá barn­æsku höfðu sjálfs­vígs­hugs­anir herjað á hann, hann hafði reynt að deyfa van­líðan með vímu­efnum en nú var neyslan farin að svíkja hann. Stjórn­leysið var orðið slíkt að hann sá fram á að missa allt frá sér sem skipti máli, fíkni­vandi og spilafíkn settu fjár­hag­inn úr skorðum og tengslin við hans nán­ustu aðstand­endur voru að rofna. Þrátt fyrir örvænt­ing­una sem herj­aði á hann gat hann ekki hætt og sá enga leið út. 

Á síð­asta ári sviptu átta karl­menn undir þrí­tugu sig lífi. Í dag þakkar Arnar fyrir að sjálfs­vígstil­raunin mis­heppn­að­ist. Þegar hann vakn­aði aftur til með­vit­undar leit­aði hann sér aðstoðar á bráða­mót­töku geðsviðs á Land­spít­al­anum. „Minn tími …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Megi góður Guð gefa ykkur styrk til að þroskast og eflast í kærleika og þekkingu.
    1
  • Katrín Jónsdóttir skrifaði
    Elsku vinir, takk fyrir þetta viðtal, þið eruð hetjur
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Týndu strákarnir

„Starfsmenn hafa verið hræddir“
InnlentTýndu strákarnir

„Starfs­menn hafa verið hræddir“

Á Stuðlum hefur sér­stöku öryggis- og við­bragð­steymi hefur verið komið á til að takast á við árásir á starfs­menn og tryggja að þving­anir gagn­vart börnum fari fag­lega fram. Tengsl eru besta for­vörnin segir starf­andi for­stöðu­maður en það dugar ekki alltaf til. Starfs­menn hafa lent í því að það er hrækt á þá, þeir bitnir, skall­aðir og nef­brotnir. Sparkað hefur verið í haus­inn á starfs­mani, hár rifið af höfði starfs­manns og brotin tönn.
Syrgja fyrrverandi skjólstæðing: Til mikils unnið ef hægt er að koma heilunarferli af stað
InnlentTýndu strákarnir

Syrgja fyrr­ver­andi skjól­stæð­ing: Til mik­ils unnið ef hægt er að koma heil­un­ar­ferli af stað

„Við leyfum ekki neyslu hér inni en hver er hinn val­mögu­leik­inn?“ spyr starf­andi for­stöðu­maður Stuðla. Reglur kveða skýrt á um að fíkni­efni séu bönnuð á Stuðlum en börnum er ekki vísað út vegna neyslu. Ef hægt er að koma heil­un­ar­ferli af stað er til mik­ils unnið. „Þetta eru börn sem við þurfum að vernda,“ segir for­stöðu­mað­ur­inn, en starfs­fólkið syrgir fyrr­ver­andi skjól­stæð­ing.
Stuðlar: „Með börn sem voru sekúndum frá því að deyja“
VettvangurTýndu strákarnir

Stuðlar: „Með börn sem voru sek­úndum frá því að deyja“

Mann­skæður bruni, starfs­maður með stöðu sak­born­ings og fíkni­efnin flæð­andi – þannig hafa frétt­irnar verið af Stuðlum. Starfs­menn segja mikið geta gengið á. „Þetta er stað­ur­inn þar sem börnin eru stoppuð af,“ segir starf­andi for­stöðu­maður. Flestir sem þangað koma hafa orðið fyrir alvar­legum áföllum og bera sár sem getur tekið ævina að gróa.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár