„GRÍÐARLEGT HÖGG“ stóð á forsíðu Morgunblaðsins fimmtudaginn í vikunni sem leið. Í viðtölum fjölmiðla fluttu sveitarstjórnarmenn, verkalýðsforingjar og foringi iðnrekenda svartnættisboðskap og á Alþingi tóku aðdáendur álvera undir fullum hálsi. Krafist var tafarlausra aðgerða af ríkinu. Helst var að heyra að atvinnulíf á landinu væri að hruni komið, þjóðarbúið stórskaðað, gjaldeyrir senn á þrotum, ríkisfjármálin í rústi og fjárlagafrumvarpið ónýtt.
Lítið heyrðist um orsakir þessara hörmunga utan það að spennar hefðu sprungið í álveri Norðuráls sem malað hefur gull fyrir eigendurna síðasta aldarfjórðung og að hluti framleiðslunnar myndi falla niður um tíma. Engin greining á afleiðingum og engin rök fyrir meintum þrengingum. Kröfur um aðgerðir voru í engum tengslum við ætlaðan skaða. Lækka átti veiðigjald, þótt Norðurál greiði ekki slíkt og lækka átti skatta þó Norðurál greiði ekki skatta.
Spennarnir sprungu á miðvikudegi og stór hluti lesenda Mbl. fékk því strax fréttirnar. „(S)kamma stund verður hönd höggi fegin,“ segir í Njáls sögu og svo varð einnig nú því brátt kom í ljós að vindhögg hafði verið slegið. Rantið hélt að vísu áfram fram eftir degi án þess þó að rantendur væru spurðir raka. Um miðjan fimmtudag birti Þórólfur Matthíasson prófessor emeritus í hagfræði færslu á Fésbókinni þar sem hann kippti umræðunni niður til jarðar, a.m.k. fyrir þá sem taka rökum og skilja þau einföldu sannindi sem hann dró fram og gerði síðar nánari skil í grein í veftímaritinu ff7, 25.okt., Áhrif framleiðsluhlés hjá Norðuráli á landsframleiðslu og þjóðarframleiðslu.
Niðurstaða Þórólfs er skýr og vel rökstudd. Lækkun þjóðartekna af þriggja mánaða framleiðsluhléi gæti orðið 2,5 til 10 milljarðar króna sem er 0,1-0,2% árlegrar þjóðarframleiðslu. Ástæðan fyrir svo litlum áhrifum er einföld. Aðeins lítill hluti virðisauka í starfsemi Norðuráls skilar sér til íslenskra aðila. Sá hluti er eingöngu laun starfsmanna álversins og hagnaður af aðfangakaupum hér á landi, raforku o.fl. Hagnaður Norðuráls rennur til eigenda þess sem að auki hafa komið því svo fyrir að það greiðir aldrei tekjuskatt þrátt fyrir að lesa mátti í ársskýrslu eignarhaldsfélagsins að Norðurál sé gullmoli sem skilar hagnaði við allar aðstæður.
Þessi dapurlega mynd af efnahagslegu gagnleysi Norðuráls á einnig við um önnur álver á landinu og etv. fleiri fyrirtæki í erlendu eignarhaldi. Í grein í Heimildin í maí 2024, Ál eða glópagull, gerði ég athugun á efnahagslegum áhrifum málmframleiðslu, aðallega álframleiðslu, árið 2019 á grundvelli þjóðhagsreikninga Hagstofu Íslands. Þar sýndi sig að málmframleiðslan;
-
notaði um 71% allrar raforkuframleiðslu í landinu
-
að hjá henni starfaði 0,9% mannafla í landinu
-
að hún greiddi 1,65% af launum og tengdum gjöldum í landinu
-
að hlutdeild hennar í vergri landsframleiðslu var 3,4 %
-
að hlutdeild hennar í þjóðarframleiðslu var 0,9-1,2%
Niðurstaða Þórólfs kemur heim og saman við tölur þessar.
Öll fyrirtækin á þessu sviði eiga það sammerkt að vera í eigu erlendra aðila, kaupa orku á lágu verði og nota fjármálaflækjur til að komast hjá skattgreiðslum hér á landi. Líklegt er að hið sama eigi við um aðra starfsemi í eigu erlendra fjármagnseigenda svo sem gagnaver, sem nota um 5% orkuframleiðslu, og fiskeldi í fjörðum landsins. Opinberar upplýsingar um það liggja ekki fyrir en væru auðunnar hefðu stjórnvöld áhuga á að kanna nýtingu íslenskra náttúruauðlinda. Eina stóra orkufyrirtækið að hálfu í einkaeign erlendra aðila hefur þegar róið á sömu mið í skattamálum og álverin hafa gert með góðum árangri og líklegt er að komandi vindorkuver hugsi sér einnig gott til glóðarinnar. Um það má lesa í nýlegum greinum eftir mig sem birtust í Vísbendingu fyrr í mánuðinum. Sjá: HS Orka og lífeyrissjóðirnir og HS Orka og lífeyrssjóðirnir síðari hluti.
Höfundur er hagfræðingur, fyrrv. ríkisskattstjóri og félagi í Reykjavíkur Akademíunni















































Við þetta mætti bæta:
Núna í haust las eg rit Ragnheiðar Þorgrímsdóttur hestabónda á Kúludalsá undir austurhlíðum Akrafjalls. Undanfarin ár hefur hún átt í hetjulegri baráttu við mengunaröflin sem skreyta sig með grænni orku og ýmsu fíneríi til að slá ryki í augu venjulegs fólks. Ragnheiður hefur þurft að sjá á eftir 25 hestum en flúormengun átti sinn þátt í dauðastríði þeirra. Mögnuð lesning sem víkur að mörgum vanköntum í okkar samfélagi sem hefur veri rekið meira af bjartsýni og rómantík en raunsæi.
Eg kíkti á vefsíðu álbræðslunnar Norðuráls. Satt best að segja skil eg ekkert í framsetningu ársreiknings. Rekstrartekjur fyrir árið 1024 var USD 793,304 eða nálægt 96milljarðar ISKR.
Í stað sundurliðunar rekstrarliða er færður sem: Framleiðslukostnaður USD 721,969. Launakostnaður fyrirtækisins kemur fram annars staðar og nemur æpum 76 milljónum bandaríkjadollara. Hvergi kemur fram hve kostnaður vegna hráefnis og rafmagns hefur reynst og verður það að teljast miður. Ársteikninginn má nálgst á þessari slóð:
https://nordural.is/.../Arsreikningur-Nordurals...
Mjög mikil þörf væri á að þetta mál verði skoðað nánar og þá gjarnan í tengslum við önnur mál. Umhverfisvottun þessa fyrirtækis verður t.d. að teljast byggð á fremur veikum forendum.
Alltaf er góð ástæða að lesa ábendingar og gagnrýni sem birtast í fjölmiðlum. Eg hefi lesið greinar hagfræðinga sem og ýmissa annarra um ýms mál og tel mjög mikilsvert að umræða sé um sem flest.