Þúsundir strandaglópa vegna gjaldþrots Play: Hafa tapað 24 milljörðum á 5 árum

Þúsundir eru stranda­glópa út um allan heim eftir að Play tilkynnti um rekstrar­stöðvun í morgun.

Play hefur hætt starfsemi.
Play hefur hætt starf­semi. Mynd: Golli

Flug­félagið Play hefur hætt starfsemi. Þetta kom fyrst fram á Vísi. 

Í tilkynningu segir að um 400 manns muni missa vinnuna og þúsundir flug­farþega þurfa að endur­skipuleggja heimför. Þá verða samstarfs­aðilar fyrir­tækisins fyrir tjóni. 

Í tilkynningu er neikvæðri fjölmiðla­umfjöllun meðal annars kennt um og að flug­miðasala hafi ekki gengið vel síðustu vikur og mánuði vegna gagn­rýninnar umfjöllunar fjölmiðla. 

Rekstrar­erfiðleikar fyrir­tækisins hafa legið fyrir um nokkurt skeið og verið fjallað um síðustu mánuði. Þá fór félagið í mikla endur­skipulagningu síðasta haust þegar tilkynnt var að félagið myndi vera með flug­rekstar­leyfi frá Möltu, en ekki íslandi.

Vísir greindi frá því fyrr í mánuðinum að flugmenn Play hefðu verið í óformlegar verkfalls­aðgerðir í byrjun september og voru flug­ferðir felldar niður að þeim sökum. Þá kom fram að það væri ólíklegt að félagið væri að fara á hausinn, í ljósi þess að félagið var nýbúið að landa tveggja og hálfs milljarðs króna fjár­mögnun.  Var þá dregin sú ályktun af hálfu viðmælanda að félagið væri ekki að fara á hausinn.

Heimildin greindi frá því fyrr  á árinu að Rekstur Play hafi aldrei skilað hagnaði auk þess sem flug­félagið hefur aldrei tapað jafnmiklu og árið 2024. Tapið á síðasta ári nam tæpum 9,3 milljörðum króna, sem er 4,5 milljörðum verri niður­staða en árið þar á undan. Samanlagt tap af rekstri Play er rétt tæpir 24 milljarðar króna á fimm ára tímabili.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gjaldþrot Play

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár