Netanyahu segir að Palestínuríki væri „sjálfsmorð“ fyrir Ísrael

Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, hét því að standa í vegi fyrir sjálf­stæðu Palest­ínu­ríki í ræðu á þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Fjöldi sendi­full­trúa á þing­inu gekk út við upp­haf ræð­unnar. Hann hét áfram­hald­andi bar­áttu gegn Hamas, þrátt fyrir mót­mæli, ásak­anir um stríðs­glæpi og vax­andi alþjóð­lega gagn­rýni.

Netanyahu segir að Palestínuríki væri „sjálfsmorð“ fyrir Ísrael
Ráð­herr­ann „Ísrael mun ekki leyfa ykkur að troða hryðju­verk­a­ríki ofan í okkur,“ sagði Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, þegar hann ávarp­aði alls­herj­ar­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York í dag. Mynd: ANGELA WEISS / AFP

Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, hét því í ræðu hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum fyrr í dag að standa í vegi fyrir sjálf­stæðu Palest­ínu­ríki. Þá sak­aði hann evr­ópska leið­toga um að neyða land hans til að „fremja sjálfs­morð á þjóð“ sinni og verð­launa Hamas.

Net­anyahu hét í ræð­unni, sem hann sagði að væri að hluta útvarpað í hátöl­urum ísra­elska hers­ins á Gaza, að „klára verkið“ gegn Hamas. Það gerði hann jafn­vel þó Donald Trump Banda­ríkja­for­seti segð­ist telja að hann hefði tryggt sam­komu­lag um vopna­hlé.

Nokkrir dagar eru síðan Frakk­land, Bretland og mörg önnur vest­ræn ríki við­ur­kenndu Palest­ínu sem ríki. Net­anyahu sagði að með því hefðu þau sent „mjög skýr skila­boð um að það að myrða gyð­inga borgi sig“.

„Ísrael mun ekki leyfa ykkur að troða hryðju­verk­a­ríki ofan í kokið á okkur,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann í ræð­unni. „Við munum ekki fremja sjálfs­morð á þjóð okkar vegna þess að þið hafið ekki hug­rekki til að horfast í augu við fjand­sam­lega fjöl­miðla og gyð­inga­hatandi múg sem krefst blóðs Ísraels,“ sagði hann.

Forseti palest­ínsku heima­stjórn­ar­innar, Mahmud Abbas, er and­stæð­ingur Hamas-sam­tak­anna, sem fara með stjórn á Gazaströndinni, og for­dæmdi árás­ina sem og gyð­inga­hatur í ræðu sinni á fimmtu­dag, sem hann flutti í gegnum fjar­fund eftir að Banda­ríkin neit­uðu honum um vega­bréfs­á­ritun.

Net­anyahu – sem hefur verið and­vígur Palest­ínu­ríki í ára­tugi – gerði lítið úr stuðn­ingi Vest­ur­landa við Abbas og kall­aði palest­ínsku heima­stjórn­ina „gjör­spillta frá rótum“.

Net­anyahu minnt­ist þó ekki á inn­limun Vest­ur­bakk­ans, sem sumir ráð­herrar hans hafa hótað að nota til að koma í veg fyrir mögu­leik­ann á raun­veru­legu Palest­ínu­ríki. Trump, sem venju­lega hefur stillt sér upp sem ein­örðum banda­manni Net­anya­hus, hefur varað við inn­limun á sama tíma og hann leggur fram frið­ar­á­ætlun fyrir Gaza sem myndi fela í sér afvopnun Hamas.

Net­anyahu lagði sér­staka áherslu á að hrósa Trump, sem hann mun hitta á mánu­dag í Washington.

Trump sagð­ist telja að sam­komu­lag um enda­lok stríðs­ins væri í höfn skömmu eftir að Net­anyahu hafði lokði ræðu sinni. „Ég held að við höfum náð sam­komu­lagi,“ sagði hann.

Fór krókaleið á fundinn

Þar sem Net­anyahu stendur frammi fyrir hand­töku­skipun Alþjóð­lega saka­mála­dóm­stóls­ins vegna ásak­ana um stríðs­glæpi, þar á meðal að nota skipu­lagt svelti sem vopn, fór for­sæt­is­ráð­herr­ann óvenju­lega leið til New York, meðal ann­ars með flugi yfir hið mjóa Gíbralt­ar­sund. 

Þegar hann gekk upp í ræðu­stól Alls­herj­ar­þings­ins gekk fjöldi sendi­nefnda strax út. Þau höfðu komið ein­göngu til að yfir­gefa sal­inn þar sem Net­anyahu var fyrsti ræðu­maður dags­ins. Dynjandi lófatak ómaði engu að síður um sal­inn þar sem Net­anyahu hafði boðið stuðn­ings­mönnum að fylgj­ast með úr áhorf­endapöll­unum.

Mót­mæl­endur héldu fund í nágrenni Times Square og köll­uðu eftir hand­töku Net­anya­hus. „Stríðs­glæpa­menn eiga ekki skilið neina sál­arró. Þeir eiga ekki skilið svefn,“ sagði Andrea Mirez, ung kona sem hélt uppi hávaða­mót­mælum fyrir utan hótel Net­anya­hus alla nótt­ina, við AFP. 

Net­anyahu mót­mælti harð­lega í ræðu sinni ásök­unum um að Ísrael væri að fremja þjóð­ar­morð í Gaza og benti á að Ísrael hefði ítrekað sent bæk­linga með við­vör­unum til almennra borg­ara um að yfir­gefa svæðið. Alþjóð­leg mann­úð­ar­lög líta þó einnig á þving­aða brott­flutn­inga sem stríðs­glæp. Nánast allir íbúar Gaza hafa neyðst til að flýja heim­ili sín í stríð­inu.

Samkvæmt sam­an­tekt AFP voru 1.219 drepnir í árás Hamas 7. októ­ber 2023, að mestu óbreyttir borg­arar. Inn­rás­ar­stríð Ísraels á Gaza, sem varað hefur sleitu­laust síðan, er sagt svar við henni. Árásir Ísraels hafa síðan þá drepið fleiri en 65.500 Palest­ínu­menn, flesta óbreytta borg­ara, sam­kvæmt tölum heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins á Gaza, þar sem Ham­assam­tökin eru við stjórn. Sam­ein­uðu þjóð­irnar telja töl­urnar áreið­an­legar.

„Við höfum ekki gleymt ykkur“

Net­anyahu sagði að ræðu hans hefði verið að hluta útvarpað í hátal­ara í þeirri von að ná bæði til leið­toga Hamas og gísl­anna sem enn eru haldnir frá árás Hamas þann 7. októ­ber 2023.

„Við höfum ekki gleymt ykkur – ekki í eina sek­úndu. Öll þjóðin er með ykkur, og við munum ekki þegja eða gef­ast upp fyrr en við höfum komið ykkur öllum heim, lif­andi jafnt sem látnum,“ sagði Net­anyahu, og skipti stutt­lega yfir í hebr­esku.

Fjöl­skyldur gísla hafa gagn­rýnt hernað Net­anya­hus og kallað eftir vopna­hléi til að bjarga ást­vinum sínum.

Net­anyahu flutti ræð­una nokkrum mán­uðum eftir að hann fyr­ir­skip­aði stór­felldar loft­árásir á kjarn­orku­mann­virki Írans. Í ræð­unni dró hann fram kort af Mið­aust­ur­löndum, tók upp penna og kross­aði yfir and­stæð­inga sem Ísrael hefði ráðið af dögum. Íran snið­gekk ræð­una og lagði á borð sendi­nefndar sinnar myndir af hluta þeirra rúm­lega þús­und manns sem írönsk stjórn­völd segja hafa lát­ist í árás­unum.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    1947 voru gerð þau mistök hjá Sameinuðu þjóðunum að leyfa stofnun Ísraels á landi Palistínu sem er enn í eigu Palestínsku þjóðarinnar, þetta var mannana verk nú er það bara að "Skíta í lofana og bretta upp axlirnar" og snúa þessu við, ef það var hægt að stofna ríki þá hlítur það að vera hægt að leggja það aftur niður! Bara smá pæling í morgunsárið!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár