Telur málið eiga fullt erindi til Mannréttindadómstólsins

Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður Aðalsteins Kjartans­sonar blaða­manns, segir til skoðunar að fara með meiðyrðamál fyrir Mann­réttinda­dómstól Evrópu. Páll Vilhjálmsson bloggari var sýknaður í málinu.

Gunnar Ingi Jóhannsson
Gunnar Ingi Jóhanns­son

„Þetta er niður­staðan og ég tel að dóma­fordæmi frá Mann­réttinda­dómstólnum gefi vísbendingar um að þessi niður­staða sé langt frá því að vera rétt,“ segir Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður Aðalsteins Kjartans­sonar, aðstoðar­ritstjóra Heimildarinnar.

Páll Vilhjálmsson bloggari var sýknaður í Lands­rétti í júní sem hann lét falla um Aðalstein. Hæstiréttur hafnaði því í gær að taka málið fyrir.

Aðalsteinn stefndi Páli vegna skrifa og vann málið í héraðs­dómi en Lands­réttur snéri dómnum í kjölfarið við. Skrif Páls vörðuðu umfjöllun Aðalsteins og annarra blaða­manna um svokallaða „skæruliða­deild Samherja“ sem beitti sér í opinberri umræðu um Samherja­málið sem varðar meintar mútu­greiðslur í Namibíu og skatta­undanskot tengdum alþjóð­legum rekstri útgerðar­fyrir­tækisins.

Páll sakaði blaða­mennina um að hafa haft aðild að byrlun á skip­stjóra Samherja. Lögreglan á Norður­landi eystra rann­sakaði byrlunar­málið í þrjú ár en felldi það niður í fyrra.

Gunnar Ingi segir til skoðunar að fara með málið fyrir Mann­réttinda­dómstól …

Kjósa
45
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Að hagsmunaaðilar komist upp með aðstoð dómstóla að þagga niður réttmæta gagnrýni rannsóknablaðamanna , verður að teljast miður fyrir samfélag sem telur sig teljast til réttarríkis.
    Auðvitað ber að bera þetta mál undir Mannréttindadómstólinn í Strassbourgh enda varðar það störf blaðamanna sem og okkur öll.
    Það er ætíð farsælt að sýna fyllstu varkárni og fullyrða fremur minna en of mikið. Pistlahöfundurinn sem málið snýst um hefur orð á sér að fara oft of langt í fullyrðingum sínum. Blaðamaðurinn hefur kappkostað að vanda sín störf og bera að virða þau.
    13
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár